08.03.1928
Neðri deild: 42. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í C-deild Alþingistíðinda. (1773)
135. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Ásgeir Ásgeirsson:
Jeg tek undir það með hv. 2. þm. Rang., að aðalatriði þessa máls er að hrinda útvarpinu í framkvæmd. Jeg er honum einnig sammála um, að það sje mikið menningaratriði. En þjóðleikhúsmálið er einnig menningaratriði. Það er því verið að taka fje frá einu menningarfyrirtæki og; veita það til annars. Og þar sem svo stendur á, að hjer eru tvær menningarstofnanir, sem kljást, fæ jeg ekki annað sjeð en að frv. eigi heima í mentun. Og fyrst einn af fjárhagsnefndarmönnum hefir verið að seilast eftir því í þá nefnd, held jeg, að ekki sje athugavert, þó að jeg mælist til þess, að því sje vísað til mentmn. Jeg hygg, að fullar líkur sjeu til þess, að sú nefnd muni líta á nauðsyn beggja hinna merku mála, sem gera á upp á milli.