08.03.1928
Neðri deild: 42. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 463 í C-deild Alþingistíðinda. (1777)
135. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Sigurður Eggerz:
Jeg vil enn leggja áherslu á það, og beina því sjerstaklega til allra þeirra, sem bera þjóðleikhúsið fyrir brjósti, að ef þetta fje verður á annað borð tekið til þess að reka útvarpið, er hætt við, að haldið verði áfram að leggja hömlur á framkvæmdir í leikhúsmálinu. Fyrsta hamlan er lögð, þegar í þessu frv., þar sem ákveðið er, að byggingin skuli eigi hafin, fyr en sjóðurinn er orðinn hálf milj. kr. Hver veit, nema takmarkið verði, að nokkrum tíma liðnum, fært upp í 1 milj. Mætti þá svo fara, að byggingu leikhússins yrði þá skotið á frest, hver veit hve lengi, sjerstaklega, ef fjárhagur ríkissjóðs yrði erfiður.
Því að leiðinlegt sje að endurtaka orð sín, verð jeg að segja það aftur, að mjer finst alveg ófært að stofna til útvarpsins með bráðabirgðaláni. Hv. þm. N.-Ísf. talaði um, að skila ætti sjóðnum aftur eftir 2–3 ár. En hvaða gagn er ríkinu að fá fjeð til umráða svo stuttan tíma? Hjer er um tvent að ræða. Annaðhvort dregst greiðslan lengur en má, eða útvarpsmálinu er í rauninni engu betur komið, fjárhagslega, þó að frv. verði samþ. — Hv. þm. V.-Ísf. hjelt því fram, að frv. ætti fremur heima í mentmn. en fjlm. Það situr illa á okkur að deila um þetta. En þeim þætti útvarpsmálins, sem talist getur menningarmál, er lokið, þegar frv. um útvarpið er samþ. Mentmn. hefir ekkert að gera með málið. Það er enginn ágreiningur í deildinni um nauðsyn útvarpsins, og ekki heldur um nauðsyn þjóðleikhúss. En það þarf að finna ráð til að afla fjár þess, er byggja má útvarpið á. En slík mál heyra fjhn. til. Jeg hlýt að mæla með því, að málið sje sent þangað, enda þótt jeg sje í nefndinni. Mentamálastarfinu er lokið, fjárhagsatriðið er eftir.