10.03.1928
Neðri deild: 44. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (179)

1. mál, fjárlög 1929

Frsm. (Ingólfur Bjarnarson):

Um till. nefndarinnar þarf jeg ekki að segja margt. Jeg minnist þess ekki, að beint hafi verið til hennar öðru en þakklæti, og verð jeg að telja henni það til inntekta. En jeg þarf að lýsa afstöðu nefndarinnar til brtt. hv. þm. Mun jeg taka þær í þeirri röð, sem þær eru á þskj. 435. Fyrstu brtt. gat meiri hl. nefndarinnar ekki aðhylst, og leggur því á móti henni. Hv. flm. till. (BSv) fann það til, að lækningastofunni hefði áður verið greiddur styrkur, og þar með hefði hún fengið viður kenningu fyrir því, að hún v æri góðra gjalda verð. Einnig benti hann á, að Jón Kristjánsson læknir hefði haft á hendi kenslu, sem vert væri að borga. En í umsókn læknisins kemur ekkert fram um það atriði. Það hefir eitthvað verið minst á, að læknanemar gætu fengið lánaða lækningastofuna til tilrauna, og það er það, sem háttv. flm. mun eiga við. Hinsvegar leit meiri hl. nefndarinnar svo á, að að lækningastofunni væri mikil aðsókn, en allar lækningaaðgerðir þar borgaðar ærnu verði, svo að miklar líkur eru til, að stofan geti borið sig styrklaust, einkum þegar þess er gætt, að þingið gaf lækninum eftir í fyrra 3–4 ára vexti af 20 þús. kr. og veitti honum auk þess 2000 kr. styrk.

Þá kemur 3. brtt., sem er við 12. gr. 15. d., um 10 þús. kr. til sjúkrahúss í Vestmannaeyjum. Þetta er sama till., sem flutt var við 2. umr., að öðru leyti en því, að upphæðin hefir verið færð niður um helming. Hv. flm. (JJós) tók það fram, að hann hefði þótst færa styrkbeiðnina í það form, sem nefndinni mundi nægja, og vænti þess, að nefndin gæti nú tekið hana til greina. En nefndin getur ekki sjeð, að umsóknin hafi breytst neitt, nema að því leyti, að upphæðin hefir verið færð niður. Öll skjöl og skilríki, sem fyrir lágu, eru óbreytt frá því, sem var. Bæjarstjórnin hafði sótt um að fá greidd ljóslækningatæki að öllu leyti. En hv. þm. hefir breytt þessu þannig, að hann óskar eftir 10 þús. kr. til spítalans, og er það þriðjungur af því, sem Vestmannaeyingar hafa þegar tekið upp í áætlun sína til spítalans. En um þetta liggur ekkert fyrir. Nefndin efar ekki, að rjett sje frá skýrt, en vill halda fast við þá gömlu reglu, að styrkur sje ekki veittur, nema fyrir liggi ákveðin gögn um kostnað og því um líkt. Nefndinni finst því fremur ástæða til að halda fast við þetta, sem þessi bygging og fyrirkomulag spítalans yfirleitt virðist nokkuð leika á tveim tungum. Fyrir nefndinni lágu upplýsingar, sem komu í mótsögn hver við aðra. Landlæknir upplýsti, að bæjarstjórnin hefði þegið spítalann að gjöf með því skilyrði, að ekki yrði krafist framlags úr ríkissjóði. Þessu hefir hv. þm. neitað og nefndin efar ekki, að hann skýri rjett frá. Hún hefir lagt til að kaupa tækin eftir till. landlæknis, en vill ekki ganga lengra.

Næsta till. er við 12. gr. 15. m., um styrk til manna, er þurfa að fá sjer gervilimi. Brtt. sama efnis var flutt við 2. umr. af sama hv. þm. (JJós), en nú hefir upphæðin verið færð niður. Jeg skal ekki fjölyrða um þessa till. Afstaða nefndarinnar er sú, að hún leggur á móti henni.

Þá er næst 4. brtt., við 12. gr., sem fer fram á styrk til lækningaferðar til útlanda, og næstu 2 brtt. eru sama eðlis, — 4., 5. og 6. brtt. lúta allar að því að veita ákveðnum mönnum styrk til þess að leita sjer lækninga erlendis. Jeg get í einu lagi lýst afstöðu fjvn. til þessara styrkbeiðna allra, og hún er í sem fæstum orðum sú, að meiri hl. nefndarinnar leggur á móti þeim. Það er auðvitað ekkert ánægjulegt að þurfa að daufheyrast við slíkum beiðnum. En meiri hl. lítur svo á, að veikindatilfelli lík þessum geti orðið svo mörg, að ógerlegt sje að leggja út á þá braut, að ríkissjóður greiði einstaklingum lækningakostnað að meira eða minna leyti. Þótt segja megi, að hjer standi sjerstaklega á, þá eru þau tilfelli svo mörg, að erfitt mundi reynast að gera upp á milli, og því hefir nefndin ekki sjeð sjer fært að mæla með þessum brtt.

Við 13. gr. B. II. a. 1. er brtt. frá hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh) um 10 þús. kr. hækkun á framlagi til Kjalarnesvegar. Hv. þm. mintist á, að hæstv. stj. hefði lækkað til mikilla muna till. vegamálastjóra, og þótti honum það ekki heppilegt. Jeg ætla ekki að svara fyrir hæstv. stjórn. Hún mun svara í fyrir sig. En meiri hl. fjvn. leit svo á, að í samanburði við ýmsar aðrar till. um styrk til vegamála væru þessar 10 þús. kr., sem hæstv. stj. ætlar til þessa vegar, sæmileg upphæð og treystist ekki til þess að mæla með þessari hækkun.

Hv. flm. talaði mikið um þörf þessa vegar. Það er ekki hægt að bera á móti því, að hún er mikil. Það er mikið rjett, að þessum hreppi — mjer skilst það vera einn hreppur, sem um er að ræða — er nauðsynlegt að komast í daglegt samband við Reykjavík vegna afurðasölu. En á það ber að líta, hvaða aðstöðu fleiri hreppar úti um land hafa, og ekki er hægt að bæta úr samgöngubörf þeirra allra til fulls. Jeg vil og minna á, að fyrir utan veginn, sem hreppsbúum er kappsmál að fá, hafa þeir líka styrk til bátaferða upp í Hvalfjörð, og ætti það að koma þeim að nokkru liði.

8. till. er frá hv. þm. Dal. (SE) um að veita fje til Vesturlandsvegar svonefnds, 10 þús. kr., og til vara 8 þús. kr. samkv. því, er jeg sagði áður um afstöðu fjvn. til fjárveitinga til verklegra framkvæmda, þar sem nú er fengin nokkurn veginn föst vissa um auknar tekjur, þá leggur meiri hluti nefndarinnar til, að varatill. verði samþykt.

10. brtt., frá háttv. 2. þm. Rang. (GunnS) og háttv. þm. Mýr. (BA), er um akfæra sýsluvegi, að fjárveiting til þeirra verði 50 þús. í stað 35 þús. kr. Um þessa brtt. get jeg verið fáorður. Meiri hl. fjvn. hafði þegar í stað tekið afstöðu til þessa liðs með brtt, sinni, sem næst er í röðinni (XI), og vill halda sjer við 40 þús. krónur.

Þá er 12. brtt., nýr liður við 13. gr. um 12 þús. kr. til Fjallabaksvegar í Rangárvallasýslu, frá hv. 1. þm. Rang. (EJ) og fleirum. Fyrir nefndinni lágu engar skýrslur nje gögn um veg þennan, og hafði hún því ekki hugmynd um, hverskonar vegur þetta væri. Hjelt hún helst, að það væri hálfgerður öræfavegur. En hv. þm. (EJ) hefir nú upplýst, að þetta er sýsluvegur. Fer þá um veiting til hans sem annara sýsluvega. En mjer skildist á hv. 2. þm. Rang., að vegurinn lægi alla leið austur í Skaftártungu. Ekki getur hann verið sýsluvegur alla þá leið. En það er um afstöðu nefndarinnar að segja, að hún er á móti því, að þessi vegur sje styrktur sjerstaklega. Að svo miklu leyti sem um sýsluveg er að ræða, hlýtur hann að lúta sömu lögum og aðrir samskonar vegir. Og nefndin leggur ekki til, að til hans verði veitt meira fje úr ríkissjóði en lögboðið er.

Hvað það snertir, að hæstv. stjórn og vegamálastjóri hafi lofað þessu tillagi til þessa vegar, þá veit jeg ekki, hvaða heimild hann hefir til þess að ráðstafa fje til vegamála. Hann hefir aðeins tillögurjett í þeim efnum. Umsögn hans vantar, og þar sem þessari brtt. var fyrst útbýtt í dag, hafði fjvn. ekki tækifæri til þess að bera þetta undir vegamálastjóra. En jeg lít svo á, að slíkt loforð, sem hv. þm. (EJ) hermir upp á hann (þ. e. vegamálastjóra), sje alls ekki bindandi.

13. till. á sama þskj. (435) er frá hv. þm. N.-Ífsf. (JAJ), um 2000 kr. til vegar um sandgræðslusvæðið í Bolungarvík, gegn jöfnu framlagi annarsstaðar að. Mjer skilst af ræðu háttv. flm. í dag, að ekki sje ástæða til að segja margt um þessa brtt. Þessi vegur hlýtur að skoðast sem sýsluvegur, og er þá sjálfsagt hægt að fá helming kostnaðar við hann af því fje, sem ætlað er til sýsluvega. Það er að minsta kosti mikil von til, að viðkomendur geti fengið hinn umbeðna styrk þannig. Ekki kannske þegar allan í einu, en hann hlýtur þó að fást. — Nefndin er því einhuga um, að ekki komi til mála að samþykkja till., og leggur á móti henni.

14. brtt. á sama þskj., frá hv. 1. þm. Árn. (JörB), fer fram á að hækka um 100 kr. lítilsháttar styrk til ferju á Hrosshyl í Þjórsá. Þetta er örsmá upphæð, sem ekki er ástæða til þess að eyða mörgum orðum að. Meiri hluti nefndarinnar sá ekki fram komnar neinar þær upplýsingar, sem sýndu, að nauðsynlegt væri að breyta þessum lið.

Þá er 15. brtt., frá háttv. 4. þm. Reykv. (SÁÓ), um 800 kr. styrk til Ólafs Sveinssonar vitavarðar til þess að fullgera akveg að Reykjanesvita. Nefndin er á móti þessu. Hún telur ekki rjett að veita fje til sjerstakra vega svo að segja út í loftið. Hjer mun vera um hreppaveg eða sýsluveg að ræða. Nefndin vildi ekki leggja með þessum styrk án þess vegamálastjóri mælti með honum. Bar hún því styrkbeiðnina undir vegamálastjóra, og sá hann sjer ekki fært að mæla með henni.

16. brtt. á sama þskj. er flutt af þremur hv. þm. og fer fram á 4000 kr. styrk til Páls Stefánssonar, bónda á Ásólfsstöðum, til þess að reisa gistihús. Nefndin hefir að vísu óbundnar hendur um þessa till., en meiri hl. er á móti henni. Taldi hann það skapa óþægilegt fordæmi, ef veita ætti styrk til bygginga í þessu augnamiði. Tvær eða þrjár sviplíkar beiðnir lágu fyrir fjvn. Þétt hún vildi gera upp á milli þeirra, þá er það ekki svo þægilegt. Það er ekki nema eðlilegt, að fleiri beiðnir slíkar komi úr öllum áttum. Fyrir slík gistihús er mjög mikil þörf víða um land, og væri runnið á vaðið, þættust margir hafa rjett til meiri og minni styrks hjá ríkinu í sama skyni.

Loks er 19. brtt. á sama þskj. um hækkun á fjárframlögum til nýrra símalagninga, frá hv. þm. N.-Ísf. (JAJ). Álit og till. meiri hl. að leggja á móti þessari breytingu stafa eingöngu af þeirri ástæðu, að hann sá sjer ekki fært að leggja til meiri hækkun en þegar er gerð. Það er alls ekki meining nefndarinnar, að þessi nýja lína, sem brtt. bindur hækkunina við, sje ekki ákjósanleg, heldur hitt, að hún getur ekki lagt til, að meira verði veitt til símalagninga að sinni.

Jeg held jeg hafi þá minst á flestar brtt., er fyrir liggja við þennan kafla fjárlaganna. Hvað snertir till. um styrk til bátaferða, frá hv. samgmn., hefi jeg ekkert að segja frá fjvn. Hún hafði ekki nál. hv. samgmn. í höndum fyr en fundi var slitið.

Brtt. 450, frá hv. þm. Rang. (EJ, GunnS) og háttv. 3. þm. Reykv. (JÓl), um að veita 10 þús. kr. til vegar yfir Hvolsvöll, var fyrst útbýtt á fundi, og hafði nefndin ekki tíma til þess að taka afstöðu til hennar og hefir því óbundin atkv.

Þá er að síðustu till. á þskj. 454, um að veita starfsmanni ríkisins launauppbót. Nefndin hefir heldur ekki tekið þessa till. til álita, því að henni var fyrst útbýtt á fundi. Hefi jeg því ekkert um hana að segja frá nefndinni. En frá eigin brjósti get jeg sagt það, að jeg tel varhugavert, er endurskoðun launalaganna stendur fyrir dyrum, að fara að taka ákveðna afstöðu um einstaka embættismenn.

Þá hefi jeg minst á till. allar og lýst afstöðu fjvn. til þeirra og læt þar með lokið máli mínu.