13.02.1928
Efri deild: 21. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í C-deild Alþingistíðinda. (1795)

45. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o.fl.

Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson):

Jeg get tekið undir það, að ekki þýði að hafa langar umræður um þetta mál og get vísað til þess, er jeg sagði um það á síðasta þingi. Jeg tel, að frv. þetta, sem fer fram á, að bæjar- og hreppsfjelög fái forkaupsrjett á eignum einstakra manna, gangi svo langt, að það geti ekki rjettlæst af neinu öðru en af stefnu flm. þess, sem vilja láta ríki eða bæjarfjelög eiga allar eignir. Frá því sjónarmiði er frv. fullkomlega eðlilegt.

Það er mín skoðun, að í gildandi hafnalögum sjeu nægileg ákvæði, sem tryggja bæjar- og hreppsfjelögum rjett til hafnarmannvirkja. En hvað sem um það er, get jeg á engan hátt fallist á, að bæjarfjelögum sje heimilaður forkaupsrjettur á hvaða húseignum, sem vera skal, innan bæjarfjelagsins, og á hvaða landi sem vera skal utan þess. Jeg sje ekki betur en að allir fasteignaeigendur standi í raun og veru rjettlausir og berskjaldaðir gagnvart hrepps- og bæjarfjelögum, ef frv. nær fram að ganga.