13.02.1928
Efri deild: 21. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í C-deild Alþingistíðinda. (1847)

81. mál, atvinnurekstrarlán

Jón Baldvinsson:

Það er alveg rjett hjá hv. flm., að mikill skortur er á veltufje í landinu, og að gott væri að fá aukið lánsfje. Skuldaverslunin blómgast betur nú en nokkru sinni fyr. Í sumum sveitum er ástandið það, að þar eru varla til peningar til að kaupa fyrir frímerki á brjef, hvað þá það sem meira er. Úr þessu er vitanlega nauðsynlegt að bæta. — Jeg skildi hv. 1. flm. svo, sem ekki væri haldið mjög fast við formið á frv., því að hann komst svo að orði, að þeir flm. væru með því að hreyfa uppástungum til að bæta úr lánsþörfinni. Tel jeg því alveg rjett að taka frumvarpinu eins og uppástungu í þessa átt.

Hinsvegar get jeg ekki annað en glaðst yfir sinnaskiftunum hjá íhaldinu gagnvart hinni „ógurlegu samábyrgðarflækju“, sem það hefir svo kallað og álitið sitt æðsta hlutverk að berjast á móti. Það er gott, að Íhaldsmenn sjá þó einu sinni, að samvinnan er nauðsynleg, og jeg vona, að augu þeirra opnist um það efni á sem flestum sviðum.

Af því að einn hv. flm. er í bankaráði Landsbankans, hefi jeg leyft mjer að gera ráð fyrir, að frv. sje a. m. k. samið í samvinnu við þann banka. Ef þetta á að komast í framkvæmd, þá verður það að gerast í samráði við þá menn, sem Landsbankanum stýra. Álíti þeir þetta alt óframkvæmanlegt, þá er frv. ekki til neins. Fljótt á litið sýnast nú ýmsir annmarkar á þessu. En ef forráðamenn Landsbankans telja leiðina færa, þá eru allar líkur til, að kleift sje að fara hana.

Jeg hefði talið það rjettara, að slengja ekki svo saman atvinnuvegum, sem gert er í þessu frv. Hygg jeg, að heppilegra mundi að hafa stofnanirnar tvær, aðra handa bændum og hina fyrir bátaútveginn. Er ekki ósennilegt, að hin fyrnefnda mundi talin tryggari, og væri því rjett, að lán hennar væru veitt gegn lægri vöxtum.

Í fyrra var samþykt hjer á Alþingi þál. um undirbúning lánsstofnunar handa bátaútveginum. Veit jeg ekki, hvort nokkuð hefir enn verið gert í því máli, a. m. k. liggur ekkert um það fyrir Alþingi í frumvarps- eða tillöguformi. Jeg hefi þess vegna að undanförnu starfað að því, að setja saman frv. um lánsstofnun handa bátaútveginum, og vona jeg að geta bráðlega lagt það fyrir hv. deild; e. t. v. verður það þó ekki tilbúið fyr en útrunninn er frestur til að bera fram frv., en jeg vona, að það fái samt leyfi deildarinnar til að komast að.

Jeg álít sem sje heppilegra, að hafa lánsstofnanirnar tvær, sakir þess, að lán til atvinnuveganna eru misjafnlega áhættusöm. Rekstrarlánin handa smábátum þurfa einnig að vera tvennskonar, í fyrsta lagi til að búa sig undir veiðarnar og ná aflanum, og í öðru lagi til að verka hann. Síðasta Alþingi samþykti lög, sem munu eiga að verða til að bæta eitthvað úr þessu, þannig, að bönkum og sparisjóðum er heimilað að veita fje að láni gegn sjálfsvörsluveði í afla. En eins og hv. flm. sagði, bætir þetta ekki nema lítið úr þörfinni, því að flestir smábátaeigendur eru svo fjarri bönkum og sparisjóðum, að þeir ná ekki til þessara lána. Það er því spor í rjetta átt í frv., að reyna að koma upp lánsstofnunum í sem flestum hjeruðum.

Að öllu athuguðu ber að taka frv. vel, og styð jeg það, að það fái að fara til athugunar í nefnd.