28.03.1928
Efri deild: 59. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í C-deild Alþingistíðinda. (1853)
81. mál, atvinnurekstrarlán
Frsm. 2. minni hl. (Jón Baldvinsson):
Við 1. umr. lýsti jeg afstöðu minni til þessa máls. Hún er enn óbreytt. Jeg tel það mikla bót fyrir landsmenn, ef hægt væri að koma peningamálum þjóðarinnar svo fyrir, að menn ættu aðgang að lánum, hver í sínu hjeraði. Því er svo farið nú, að erfitt er fyrir menn að ná til peningastofnana, þótt þeir eigi eignir, sem sýna, að óhætt er að trúa þeim fyrir lánum, hvað þá fyrir hina, sem lítið eða ekkert eiga veðhæft, en hafa þó fulla þörf fyrir lánsfje vissan hluta árs, til þess að geta rekið atvinnu sína með frjálsum hætti. Þetta frv. á að miða að því að bæta úr þessum annmarka á viðskiftalífi landsmanna. En á framkvæmd málsins er sá torveldleiki, sem kom mjer til þess að fylgja ekki háttv. 1. minni hl. fjhn.
Stjórn Landsbankans hefir í áliti sínu, er fjhn. leitaði eftir, talið tormerki á því, að Landsbankinn hefði forgöngu þessarar rekstrarlánastarfsemi. og eftirlitsmaður banka og sparisjóða hefir einnig í umsögn sinni tekið fram nokkur varhugaverð atriði að hans dómi. Þó þau mótmæli kunni að hafa við rök að styðjast, tel jeg þau minnu skifta heldur en hitt, að Landsbankinn treystist ekki til að hafa þessa starfsemi með höndum. Þótt jeg játi nauðsyn málsins, þá sje jeg þó, að það kemst aldrei til framkvæmda að Landsbankanum nauðugum. Fer þá að vandast málið. Þótt Landsbankinn hafi talið tormerki á að setja þessa stofnun í samband við hann, skal jeg játa, að jeg hefi litið svo á, að þessi lánastarfsemi ætti að fara fram fyrir milligöngu bankans, og hann hefir skilyrði til þess, að því leyti, að hann hefir föst viðskiftalán erlendis og gæti þess vegna miðlað lánsfjenu milli banka erlendis og lánsþurfa hjérlendis eftir þörfum á hverjum tíma. Mundi það spara mikið fje í vaxtagreiðslum, heldur en ef taka þyrfti fjeð alt í einu í stórum upphæðum og geyma hjer heima.
Það er í rauninni hyrningarsteinninn undir málinu, að lánin verði tekin fyrir milligöngu Landsbankans. Jeg treysti mjer tæplega til þess að fylgja því, ef ekki finst annað fyrirkomulag, sem jeg tel jafnörugt. Jeg get hugsað mjer, að þessi rekstrarlánastarfsemi stæði í sambandi við veðlánasjóð fiskimanna, sem jeg hefi flutt frv. um og nú er til athugunar í fjhn. Er svo til ætlast, að sá sjóður starfi undir sjerstakri yfirstjórn og hafi auk þess deildir úti um land. Er starfsgrundvöllur hans ekki ósvipaður því, sem hjer er um að ræða, og gæti því samrýmst hvorttveggja að því leyti. Jeg skal játa, að jeg tel æskilegt, að rekstrarlánin gæti verið í sambandi við Landsbankann, að því leyti, að hann gæti miðlað fjenu inn í landið eftir þörfum og á þann hátt sparað vexti.
Eins og jeg tek fram í nál. mínu á þskj. 590 mun jeg fylgja frv. til 3. umr. og bíða átekta, í von um að úr rætist um möguleika til þess að koma þessu máli svo fyrir, að úr framkvæmdum geti orðið.