03.04.1928
Efri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í C-deild Alþingistíðinda. (1863)

81. mál, atvinnurekstrarlán

Frsm. 2. minni hl. (Jón Baldvinsson):

Jeg sagði frá því í nál., sem jeg gerði um þetta mál, og einnig í ræðu, sem jeg flutti við 2. umr. málsins, að jeg mundi fylgja frv. til 3. umr., eða þar til sjeð yrði, hvort úr rættist um framkvæmd þessa máls. Það er, eins og hv. deildarmönnum er kunnugt, ætlast til þess, að það sje Landsbanki Íslands, sem standi fyrir þessum lánveitingum, taki erlendis, með ábyrgð ríkissjóðs, 5 milj. króna lán, sem síðan yrði veitt út um landið til sparisjóða og bankaútibúa, og sjeu þessi lán veitt, eins og segir í frv., samvinnufjelögum og fjelögum einstakra manna í hreppum landsins, sem bera sameiginlega ábyrgð gagnvart lánsstofnuninni, og setja aðrar tryggingar, sem til er tekið í frv. að vera skuli.

Nú er það kunnugt, að Landsbankinn hefir ekki tjáð sig geta haft föng á að annast þessa starfsemi. Bankastjórnin hefir svarað á þessa leið, en bankaráðið mun ekki hafa verið spurt ennþá. En ef grundvellinum er þannig kipt burt, þá sje jeg ekki, að hægt sje að láta málið ganga þannig áfram. Það væri hálf barnalegt af okkur að samþykkja frv., sem fyrir víst er vitað, að ekki mun koma til framkvæmda eða ná þeim tilgangi, sem því er ætlað. Því að þótt jeg viðurkenni nauðsyn á rekstrarlánum út um hjeruð landsins, þá get jeg ekki fengið mig til að fara að samþykkja frv., þegar jeg veit fyrir víst að ekkert verður um framkvæmdir. Það er þá aðeins verið að samþykkja pappírsgagn, og tel jeg því ver af stað farið en heima setið, og þá mundu lögin og koma í veg fyrir, að farnar verði aðrar leiðir; en það gæti samt farið með þau eins og lögin um ríkisveðbankann, að þau kæmi aldrei til framkvæmda, enda hygg jeg, að það hefði verið betra að samþykkja hann aldrei, því að það væri líklega búið að koma upp einhverri stofnun fyrir fasteignaveðslán hjer í landinu, ef þau pappírslög hefði ekki verið. Nú hefi jeg heyrt það sagt hjer, að þetta mál geti gengið áfram til Nd., en það er þó engin von um, að málið komist út úr þinginu. En ef það nú færi þannig til Nd., þá sleptum við málinu frá okkur, án þess að vita, hvort nokkrir möguleikar væri til framkvæmda, því að við vitum, að það eru engir möguleikar til þess, að frv. óbreyttu. Jeg vil ekki sleppa málinu þannig til Nd., í trausti þess, að hún taki það og breyti því svo, að það geti komist til framkvæmda, og eins þótt neðrideildarmenn segðu um eitt mál í gær, að þeir vildu samþykkja einhverjar breytingar á frv., sem röskuðu sambandi þess, í því trausti, að Ed. lagaði það. Þótt það gæti verið rjettmætt, þá er ekki víst, að það væri rjett af Ed. að sleppa frv., í trausti þess, að Nd. lagaði það. Jeg álít það ekki rjett, að sleppa málum þannig, án þess að vita fyrir víst, að þau geti komið að gagni, og með tilvísun til þess, sem jeg hefi sagt í nál. og ræðu hjer í hv. deild, leyfi jeg mjer að bera fram svohljóðandi rökstudda dagskrá:

„Í trausti þess, að ríkisstjórnin í samráði við stjórn Landsbanka Íslands taki til yfirvegunar og láti rannsaka, á hvern hátt verði sem best bætt úr rekstrarlánaþörf landsmanna, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“

Afhendi jeg svo hæstv. forseta þessa dagskrá.