14.04.1928
Neðri deild: 71. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í C-deild Alþingistíðinda. (1878)

81. mál, atvinnurekstrarlán

Jón Sigurðsson:

* Hv. 1. þm. N.-M. hjelt því fram, að með þessu frv. væri landsmönnum skapaður tvennskonar rjettur: smáframleiðendur og bændur ættu við annan rjett að búa en aðrir. Jeg vil spyrja hv. þm.: hvernig er þessu varið nú? Allir búa að vísu við sama rjett, en reyndin verður sú, að þeir, sem hafa mikið undir höndum, eiga þægilegra með að ná viðskiftum við bankana en hinir, sem eru dreifðir út um alt land í sveitum og smáþorpum og koma aldrei til Reykjavíkur eða annara kaupstaða, þar sem bankar eru. Hjer er ekki verið að skapa neinn ölmusublæ. Það er gert ráð fyrir, að Landsbankinn taki lán í þessu skyni, af því að hann hefir ekki nóg fje til þess að bæta þessu við sig. Hann á að taka reikningslán, af því að það er ódýrast, og ef vextir fara lækkandi, fer lánið líka lækkandi. En ef tekið er fast lán, verður bankinn að sitja með það. Það er því síður en svo, að hjer sje um nokkurt ölmusuatriði að ræða, heldur bara fyrirkomulag, sem okkur er hentugra, en ef bankinn tæki fast lán.

Hv. þm. taldi, að það væri annað, sem benti á, að við bændur ættum ekki að hafa sama rjett og aðrir, sem sje það, að bændur ættu að mynda fjelagsskap. Við getum hugsað okkur þann möguleika, að á bak við þetta væri enginn fjelagsskapur, þannig, að hver einstaklingur leitaði til lánsstofnunarinnar. En hver yrði reyndin? Jeg er sannfærður um, að það yrðu aðeins efnabændur, sem fengju fjeð, en hinir mundu sitja á hakanum. Fjelagsskapurinn er stofnaður til þess að útvega lánin. Efnabændur eiga að bera hina uppi. Sú litla reynsla, sem fengin er, sýnir, að efnabændurnir hafa hjálpað hinum, svo að menn hafa fengið lán, sem engar líkur voru til, að hefðu fengið það á eigin spýtur. Hv. þm. sagði, að gert væri ráð fyrir ströngum reikningsskilum. Það er alveg rjett, enda tel jeg það höfuðatriði, að venja stóra og smáa framleiðendur á skilsemi. Óskilsemin er okkar mikla böl, því að hún er svo að segja runnin þjóðinni í merg og bein. Hv. þm. sagði, að sjálfsagt væri að setja hinum stærri framleiðendum sömu reglur og hinum. Vitanlega er það sjálfsagt, en hinsvegar sje jeg ekki, að þó að þessum kröfum sje ekki framfylgt til hlítar við hin stærri fyrirtæki, skapi það okkur neinn rjett í þessu efni. Við eigum að gera strangar kröfur til okkar. Að lokum sagði hv. þm., að svo gæti farið, að þetta yrði til þess að auka skuldaverslun í landinu. En af hverju skulda menn í verslun? Það er ekki af því, að bændur sjeu þær eyðsluklær, sem hv. þm. vildi vera láta, að ef þeir kæmust yfir eyri, eyddu þeir honum í vasapeninga. Nei, það er af því, að fjöldi manna reisir bú, án þess að eiga nema rjett fyrir bústofninum, og tæplega það. Síðan standa þeir með tvær hendur tómar, þegar þeir eiga að fara að greiða ýmsar nauðsynjavörur til rekstrar búsins. Þá verða þeir að fara til verslunarinnar og skulda. Það er þetta fje, sem þá vantar, og það viljum við nú reyna að útvega þeim. Mjer dettur ekki í hug að bera á móti því, að í minni stjett sjeu til menn, sem mundu misbrúka þetta fje. En jeg fullyrði, að þeir eru svo örfáir, að ómögulegt er að taka tillit til þeirra. Jeg þori að fullyrða, að með þessu skipulagi er ekki mikil hætta á, að slíkir fjárglæframenn slæðist inn í fjelögin. Þennan fjelagsskap verður að byggja á sameignlegri tiltrú og þekkingu á búrekstri og mönnunum sjálfum, enda er það besta undirstaðan.

Læt jeg svo úttalað um þetta mál.

*Ræðuhandr. óyfirfarið af þm.