12.03.1928
Neðri deild: 45. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 851 í B-deild Alþingistíðinda. (188)
1. mál, fjárlög 1929
Sveinn Ólafsson:
Það mun nú tæpast vera fundarfært, ef litið er á tölu þm. þeirra, sem í sætum eru. En af því hv. frsm. og aðrir þeir, er talað hafa, hafa orðið að sætta sig við það að tala yfir tómum stólum, þá verð jeg víst að sætta mig við það líka. (HStef: Þeir eru ekki allir tómir). Mjög margir eru auðir. Jeg á 3 brtt. við þennan kafla fjárlagafrv., en átti enga við þann fyrri. Af þessum brtt. er þó ekki nema ein, sem snertir mitt kjördæmi, og er þar ekki um útgjöld að ræða, heldur áhættulausa ábyrgð. Jeg hefði líklega ekki takmarkað mig svo, ef jeg hefði vitað fyrir, að svo margar og stórfeldar útgjaldatill. hefðu verið væntanlegar sem þskj. 435 sýnir. Jeg hefði þá mint á ýmsar óuppfyltar þarfir míns hjeraðs, sem jeg hefi gengið framhjá. Þetta ber þó ekki að skilja svo, að jeg telji, að vel hafi verið sjeð fyrir þörfum þessa hjeraðs undanfarið, nje heldur, að jeg álíti það ekki eins rjetthátt og ýms önnur hjeruð; þvert á móti. Þetta hjerað er eitthvert tekjumesta hjerað landsins fyrir ríkissjóð, og hefir verið svo frá því um 1880, en þó afarlítið fyrir það gert. Jeg þykist því fara hæversklega í sakirnar, þegar jeg ekki krefst eyris framlags með brtt. til hagsbóta fyrir þetta stóra og tekjumikla hjerað.
Þetta er þá orðinn nokkurskonar inngangur að því, sem jeg vildi sjerstaklega sagt hafa. Jeg mun þá víkja nokkrum orðum að brtt. mínum á þskj. 435. Kem jeg þar fyrst að XLVI. lið og fer þess á leit, að til bókaútgáfunnar „Lýðmentunar“ á Akureyri verði veittur 1500 kr. styrkur. Á síðasta þingi var líka farið fram á fjárveitingu vegna þessa fjelags, en þá mishepnaðist að koma henni fram. Útgáfufyrirtæki þetta hefir nú starfað um nokkurn tíma og gefið út þrjú alþýðleg rit, mjög myndarleg. En sölu á þeim er enn ekki komið lengra en svo, að ekki hefir fengist inn nema sem svarar 1/3 af útgáfukostnaðinum. Það hefir nú ekki gengið greiðlegar en þetta, fremur en vant er hjer á landi. Þessi þrjú rit, sem Lýðmentun hefir gefið út, eru æfisaga Rousseaus, Ferðir Vilhjálms Stefánssonar og Himingeimurinn eftir Ágúst Bjarnason. Þessi rit eru orðin landskunn og útbreidd víða um sveitir landsins, þótt ekki hafi meira komið inn við sölu þeirra en fyr var getið. Nú hefir þetta fjelag á prjónunum nýja bók, sem það mun gefa út í ár; er það æfisaga Gandhis, indverska spekingsins, en auk þess er í undirbúningi útgáfa fleiri bóka. Styrkur sá, sem hjer er farið fram á að veita þessu fjelagi, er ekki nema helmingur þess, er fjelagið óskaði eftir að sjer yrði veitt. En þó svo sje, þá vænti jeg þess, að því mætti verða talsvert lið að því að fá þessa upphæð. Vænti jeg, þar sem svo hóglega er stilt til um kröfurnar, að þessu verði vel tekið, og því fremur, sem fjelag þetta hefir ekki notið neins styrks undanfarin ár til bókaútgáfunnar.
Næst er þá að minnast á brtt. LII á sama þskj. Óska jeg þar eftir námsstyrk til Agnars J. Norðfjörðs, til hagfræðináms, 1000 kr. Hann stundar sem stendur nám við háskólann í Kaupmannahöfn. Jeg skal taka það fram um leið, að samskonar styrkir, sem farið er fram á á þessu sama þskj., nema samtals 18200 kr. Hjer er því um marga menn að ræða og þetta ekki nema 1/18 af þeirri upphæð allri. — Um þennan mann má þess geta, að hann tók stúdentspróf hjer í Reykjavík á síðastl. vori og fór næstl. sumar utan til náms. Af vangá sótti hann ekki um námsstyrk áður en hann fór og varð því of seinn að leita styrksins þess lögmælda. Þess vegna er þess nú óskað, að þingið veiti honum nokkra úrlausn. Jeg vil hjer um leið minnast þess, að maður þessi varð fyrir því óhappi að fatlast frá námi mjög lengi í 5. og 6. bekk vegna heilsuleysis. Gerði það honum mjög örðugt fyrir um námið. En nú hefir hann yfirstigið þetta heilsuleysi og er fullfrískur. Þessi maður er mjer að vísu lítið kunnur, en mjer eru kunnir foreldrar hans og þekki jeg þau að góðu einu, en veit, að efni þeirra eru mjög takmörkuð. Er því lítils eða einskis styrks að vænta frá þeim til að kosta námið. Eftir því sem jeg veit best, þá er Agnar bæði efnilegur og reglusamur maður og því líklegur til að komast að settu marki, ef stuðningur fæst. Hjer er farið fram á að veita ýmsum styrk, sem áður hafa verið styrktir, og því haldið fram af forsvarsmönnum þeirra, að fyrst og fremst beri að hlynna að þeim. En mjer finst það naumast rjett að setja suma hjá, en láta aðra njóta styrks árum saman.
Þá kem jeg síðast að XCII. brtt. á þskj. 435, við 23. gr. fjárlaganna; þar fer jeg fram á, að ríkið taki ábyrgð á 80 þús. kr. láni til rafveitu í Búðahreppi. Þessi ábyrgðarupphæð — og þó nokkru hærri — hefir tvisvar verið veitt áður, 1921 og 1923, að jeg ætla, en í hvorugt skiftið verið notuð, af því að of dýrt þótti að ráðast í fyrirtækið. Efni og vinna var svo dýr á þeim árum, að óráðlegt þótti að byggja. Nú eru góðar líkur fyrir því, að lán fáist til þessa, ef ábyrgð ríkissjóðs fæst fyrir því. Enn er ekki að fullu ráðið, hvaða vatnsfall verður notað. Er um tvö að ræða. Annað er í landi, er ríkið á, og hefir fengist leyfi til að nota það. Hitt vatnsfallið rennur um lönd einstakra manna og er álíka langt frá kauptúninu, en líkur eru minni til þess, að það verði notað. Bæði eru þessi vatnsföll, að því er jeg hygg, álitleg til virkjunar fyrir svo sem 400–500 hestafla stöðvar. Jeg þykist ekki þurfa að fjölyrða um þessa till. frekar. Hún er gamall gestur hjer á þingi, sem hv. þm. margir munu kannast við frá fyrri tíð. Og mjer finst hún svo sjálfsögð og eiga svo mikinn rjett á sjer, að jeg ætla ekki að svo komnu að trúa öðru en hún verði samþykt. Hinsvegar legg jeg ekki svo mikið upp úr henni, að jeg ætli að fara að bjóða nein hrossakaup hennar vegna.
Jeg gæti í raun og veru látið máli mínu hjer lokið. En af því að jeg er staðinn upp, finst mjer rjett að víkja nokkrum orðum að till., sem fyrir liggja. Jeg ætla þó hvorki að ámæla einstökum þm. nje heldur slá hv. fjvn. gullhamra fyrir það, sem frá þeim er komið. En jeg get sagt það hreinskilnislega, að jeg er með hvoruga fyllilega ánægður. Auðvitað lítur hver sínum augum á silfrið. Jeg get fylgt mörgum af till. hv. fjvn., en þó ekki undantekningarlaust öllum. En það er eitt, sem jeg hlýt að benda á, og það eru tvennskonar brtt. við 22. og 23. gr. fjárlaganna.
Í 22. gr. standa eins og vant er lánsheimildir úr viðlagasjóði. Að þessu sinni er farið fram á 250 þús. kr. í brtt. umfram það, sem frv. gerir ráð fyrir.
Hinsvegar er við 23. gr. farið fram á eftirgjafir á gömlum lánum úr viðlagasjóði, sem svarar 70 þús. kr.
Jeg fullyrði, að á undanförnum árum hafi kröfurnar um eftirgjöf á lánum úr þessum sjóði farið vaxandi ár frá ári, og þykir mjer það illu spá, ef gengið verður inn á það að taka allar slíkar kröfur til greina. Það getur leitt til þess, að miklu af viðlagasjóðslánum verði breytt í bitlinga. Þegar búið er að veita þessi lán og velta þeim um nokkur ár, stundum með eftirgjöfum vaxta, þá er farið að kvarta um getuleysi til þess að endurgreiða lánið, og niðurstaðan verður sú, að það er gefið upp. Jeg verð að segja það sem mína skoðun, að fullkomin frágangssök er að ganga að flestum þessum kröfum, sem gerðar eru um eftirgjafir, vegna þess fordæmis, er það skapar. Það má gera ráð fyrir, að þessar kröfur vaxi ennþá hröðum fetum, þegar búið er í stórum stíl að opna gáttina fyrir þessum eftirgjafastraum. Og jeg veit, að það verður erfitt að stífla þann straum.
Það er líklega óþarft að fara um þetta fleiri orðum, og mun jeg láta við svo búið sitja. Enda mun ekki rjett að tefja tímann um of, því að margir eiga enn eftir að mæla fyrir sínum brtt. En mjer fanst jeg mega til að hreyfa þessum örfáu varnaðarorðum út af þessu eftirgjafafargani.