20.02.1928
Efri deild: 27. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 579 í C-deild Alþingistíðinda. (1897)
110. mál, útflutningsgjald af síldarlýsi
Fjmrh. (Magnús Kristjánsson):
Jeg veit ekki, hvort hv. flm, hefir misskilið mig. (EF: Það má vel vera.) Mjer fanst ræða hans snúast að miklu leyti um atriði, sem okkur ekki greinir á um.
Þó að jeg nú gangi út frá, að útreikningar hans sjeu að miklu leyti rjettir, þá er þó eitt, sem ekki er rjett, og það er það, að taka ekkert annað til greina en hráefnið. Það er fleira, sem kemur til greina við framleiðsla síldarafurða en aðeins síldin sjálf, tunnur, salt o. s. frv., og má ekki gleyma að taka það með.
Það má enginn skilja orð mín svo, að jeg vilji hindra, að frv. fái að ganga til 2. umr. og nefndar. Jeg álít þvert á móti sjálfsagt, að svo verði, en eins og jeg hefi bent á, álít jeg rjett, að nefnd taki þetta til samanburðar við aðrar skyldar tegundir. Mjer þykir ekki ólíklegt, að þegar nefnd hefir tekið þetta mál til athugunar, þá komist hún að þeirri niðurstöðu, að þær bendingar, sem jeg hefi komið fram með, sjeu þess verðar, að þær sjeu athugaðar.