23.03.1928
Efri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í C-deild Alþingistíðinda. (1942)
130. mál, Þingvallaprestakall
Ingibjörg H. Bjarnason:
Jeg vil mótmæla niðurlagsorðum hv. 5. landsk., þar sem hann taldi mig vaða í villu og svima í þessu máli. En jeg geri það áreiðanlega ekki, því ef svo væri, þá hefði jeg vit á að þegja. Ef hið sama mætti segja um hv. þm. (JBald), þá væri vel farið. Annars minti öll ræða hv. þm. á hið forna: „klipt var það, skorið var það“. En jeg læt hv. 5. landsk. vita það, að jeg ræði aldrei mál á þeim grundvelli.
En til að gera þó hv. 5. landsk. einhver skil, þá ætla jeg að athuga lítið eitt þau atriði, sem jeg skrifaði niður úr ræðu hans, en það er aðeins fátt eitt af þeim firrum, sem hann kom með. — Hv. þm. sagði, að þessum stað væri ekki meiri órjettur ger en ýmsum öðrum prestaköllum, sem eins hefði verið farið með. En eins og jeg tók fram í fyrir honum, þá eru ekki nema einir Þingvellir við Öxará til hjer á landi, og því alls ekki sambærilegt við neinn annan stað. Þingvellir eiga að verða miðdepill hátíðahaldanna 1930, á þeirri hátíð, sem ekki á sinn líka hjá neinni þjóð. Það er því eðlilegra, að alt væri gert, sem hægt er, til að auka og prýða þann stað, heldur en að farið sje að rýra sæmd hans, eins og hjer á að gera. Jeg er nú svo gerð, að jeg vil ekki láta sækja vatnið yfir lækinn, og vil því ekki, að þetta sje gert, um leið og leggja á í ýmsan kostnað vegna Þingvallahátíðarinnar. Þá hjó jeg eftir því, að hv. 5. landsk. sagði, að jeg hefði talið, að verið væri að jafna kirkjuna við jörðu og moka prestinum burt. Það er alveg satt. Það er verið að gera þetta. Kirkjan er orðin hrörleg, og þegar hætt verður að halda henni við, mun hún hrynja. Og þótt söfnuðurinn eigi að hafa rjett til að sækja til prests yfir langa fjallvegu, þá er hann jafn prestslaus fyrir því.
Þá eru þessi nauðsynlegu friðunarmál. Ætli það hefði ekki verið nauðsynlegt, að þeir, sem að þeim standa, hefðu kynt sjer betur, hvað landið þurfi að vera stórt, sem tekið verður til friðunar, svo friðunin verði ekki einungis í orði, heldur og á borði. Mátti ekki semja svo við prestinn, að hann ljeti af búskap þarna og bæta honum upp þann halla, sem af því hlytist fyrir hann. Það hefði orðið hverfandi liður í öllum tilkostnaðinum við hátíðahaldið 1930. Þá gæti presturinn verið þar áfram og besti vörður laga og siðgæðis á þessum stað. Þegar hv. þm. sagði, að útlendingar, sem þarna koma, muni ekki láta sig það neinu skifta, þá vil jeg svara því þannig, að jeg er viss um, að hv. 5. landsk. hefir ekki hugsað þetta nógu vel. Þessir gestir munu flestir hafa kynt sjer sögu þjóðarinnar og sakna kirkjunnar og prestsins á Þingvöllum. Mjer er nær að halda, að þeim mundi finnast, að hjer væri framin sú óhæfa, er samboðin væri ómentuðum lýð. Við megum ekki halda, að menn sjái ekki, hvert alt þetta stefnir.
Þessi friðun Þingvalla, sem nú er talað um, verður, því miður — jeg endurtek það: því miður — verður griðastaður, þegar búið er að afnema prest og kirkju, griðastaður fyrir allskonar slæpingja og aðra þá, er eyða tíma sínum, þar og annarsstaðar, sjálfum sjer og öðrum til óþurftar. Það verður aldrei hægt að hafa þar svo marga verði, að hægt verði að fyrirbyggja þetta.
Jeg mun nú ekki svara öðru, sem hv. 5. landsk. bar á mig. Hann vill jafna orð mín við jörðu, eins og kirkjuna á Þingvöllum. — Hv. þm. vildi líkja þessu saman við lögin um skipun prestakalla, frá 1907. En þar er ólíku saman að jafna. Það er satt, að heyrst hafa óánægjuraddir út af þeim lögum, sem eðlilegt má vera, en það er að minsta kosti miklu meiri ástæða til þess hjer. Það er með þessu verið að stofna til þess, að Þingvallasöfnuðurinn eignist einhverja þá erfiðustu kirkjusókn hjer á landi. Þeir eiga engan prest að hafa, en verða því annaðhvort að lesa sínar postillur heima, eða fara yfir heiðar til að ná í prest. Þeir verða að brjótast yfir Mosfellsheiði, til að ná í prest á Mosfelli. (JBald: Hverjir? Söfnuðurinn?) Já. söfnuðurinn, sagði jeg. Þessi lög, lögin frá 1907, eru því alls ekki á neinn hátt sambærileg við þetta, hvort sem á það er litið í ljósi sögunnar eða safnaðar- og kirkjumála.