12.03.1928
Neðri deild: 45. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í B-deild Alþingistíðinda. (195)

1. mál, fjárlög 1929

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg á eina brtt. á þskj. 435. Hún er þess efnis, að Sigurði Greipssyni í Haukadal verði veittur nokkur styrkur til þess að standast kostnað af íþróttaskóla þeim, er hann bygði þar á síðastl. sumri. Eins og kunnugt er, hefir Sigurður lagt stund á íþróttir bæði hjer og erlendis og hvarvetna getið sjer hinn besta orðstír. Þá hefir hann einnig verið glímukonungur landsins um nokkurra ára skeið. Nú lætur að líkum, að hann er ekki efnaður maður, svo ungur sem hann er og hefir varið mörgum árum til þess að nema ýmsar íþróttir og ætíð kostað sig sjálfur. Nú á síðastliðnu sumri færðist hann það í fang, sem vera mun efnahag hans ofvaxið, að byggja íþróttaskóla, sem kostaði um 12 þús. kr. Samkvæmt því, sem áður hefir tíðkast um styrki, þykir mjer það sanngjarnt, að ríkið veiti Sigurði nokkurn styrk, eða 3000 kr. — til vara 2500 kr. Sigurður hefir nú starfað í þessum skóla í vetur, og var haldið námsskeið frá veturnóttum til loka janúarmánaðar. Var þá rúm það fullskipað, er hann hafði yfir að ráða, og sóttu 12 manns þetta námskeið. Nú stendur yfir annað námskeið til vors. Jafnframt íþróttakenslunni hefir hann haldið uppi kenslu í bóklegum fræðum og hafði kennara sjer til aðstoðar til þess að annast hana. Alt þetta krefur mikilla fjármuna, og vona jeg, að hv. deild kunni að meta þetta starf, þótt meiri áhersla hafi verið lögð á íþróttakensluna, og það því fremur, sem sú stefna virðist vera uppi með þinginu að styrkja þá menn, sem hafa það starf með höndum.

Enn ríkari hvöt ætti að vera hjer til að styrkja þennan mann, þar sem fyrirfram er fengin trygging þess, að hann er prýðilega að sjer ger um marga hluti og hefir góð skilyrði til að kenna, og þar sem hjer er bæði um karlmensku- og drengskaparmann að ræða, þá er jeg ekki í nokkrum vafa um það, að auk þess sem hann getur veitt nemendum sínum góða tilsögn, muni hann einnig hafa góð áhrif á hugsunarhátt þeirra til dáða og drengskapar, og einmitt í þeim efnum ætti að leggja sjerstaka áherslu á kenslu ungra manna, á menningarhliðina.

Þá hefi jeg leyft mjer að bera fram, ásamt hv. 3. þm. Reykv. (JÓl) og hv. þm. N.-Þ. (BSv), beiðni um lán til byggingar til handa Páli Stefánssyni, bónda á Ásólfsstöðum, til að reisa gistihús. Hjer er aðeins um lán að ræða. Sá styrkur, sem farið er fram á, að honum verði veittur, hrekkur ærið skamt til þeirra framkvæmda að koma upp sæmilegum híbýlum. Bygging á þessum stað þarf að vera allrúmgóð, og þar sem þarf um langa leið að flytja alt efni til hennar, má nærri geta, hvort það krefur ekki mikilla fjármuna. Og þar sem mjer er ekki kunnugt um, að nokkrir hv. þm. dragi í efa nauðsyn þessarar byggingar, þá vona jeg, að menn sjái, að það er ekki síður nauðsynlegt að styrkja þennan mann með láni til að koma upp slíkri byggingu. Það var við umr. um fyrri kafla fjárlaganna gerð ítarleg grein fyrir allri afstöðu þarna, svo að jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um það nú.

Loks á jeg eina brtt. á þskj. 450. Hún er þess efnis, að laun aðstoðarmannsins í efnarannsóknarstofunni verði hækkuð upp í 6000 krónur, en til vara 5600 krónur. Hann hefir nú, svo sem kunnugt er, aðeins 4000 kr. Þess skal getið til samanburðar, að aðstoðarmenn hjá vegamálastjóra og vitamálastjóra hafa hvor um sig 5600 kr. Hann er við þetta starf bundinn, og forstöðumaður efnarannsóknarstofunnar hefir gefið sitt álit og meðmæli með þessari umsókn og telur starf aðstoðarmannsins alveg bráðnauðsynlegt í þágu efnarannsóknarstofunnar. Það hefir einnig mikla þýðingu í þessu máli, að maðurinn getur ekki haft aðra sýslan með höndum, og það lætur nærri, að maður, sem hefir nýlokið námi, hefir fjölskyldu og getur ekki annað starfað vegna annríkis, getur ekki komist af með einar 4000 kr. á ári. Hann hafði sent umsókn til þingsins; sú umsókn hefir legið hjá fjvn., og þótt hún hafi ekki sjeð sjer fært að taka hana upp, þá ætla jeg, að hún muni samt vera því frekar vinveitt, að laun hans verði hækkuð. Aðstoðarmaðurinn getur þess, að ef hann hefði getað haft aukastörf með höndum, þá myndi hann hafa tekið þau að sjer, en slík aukastarfsemi myndi verða til þess að rýra tekjur þeirrar stofnunar, sem hann vinnur við, en hann er ófús til þess. Tel jeg því rjettara að hækka laun hans, svo að hann geti gefið sig allan og óskiftan við starfi í þágu efnarannsóknarstofunnar.

Nú má gera ráð fyrir, að þessi starfsemi aukist allmikið, þar sem mjög hefir aukist rannsókn á fóðurefnum til skepnufóðurs, og eftir því sem jeg veit best til, þá mun Búnaðarfjelagið hafa í hyggju að gera mun meira að slíkum rannsóknum í framtíðinni, auk þess sem búast má við, að rannsókn á matvælum o. fl. aukist, eftir því sem tímar líða. Mjer sýnist því, að það sje annaðhvort að leggja þennan starfa niður, eða gera manninum mögulegt að lifa við þessa sýslan; en forstöðumaður stofunnar hefir látið svo um mælt, að það væri ómögulegt að komast af án þess að hafa aðstoðarmann við þessa stofnun. Jeg skal ennfremur geta þess til samanburðar, að aðstoðarmenn vegamálastjóra og vitamálastjóra hafa, þegar þeir eru á ferðalögum úti um land, sína dagpeninga, auk þess sem þeir starfa þannig, að þeir eiga hægra með að vinna sjer inn aukatekjur, og þó má gera ráð fyrir, að þeir hafi um 6000 kr. á ári, en þessi aðstoðarmaður hefir aðeins 4000 kr. Þessi greiðsla, fyrir svo mikið starf, er náttúrlega gersamlega ófullnægjandi, og jeg vona, að hv. deild sýni þá sanngirni við manninn, að hún þó að minsta kosti geti fallist á varatillögu mína.