30.03.1928
Neðri deild: 61. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í C-deild Alþingistíðinda. (1961)

130. mál, Þingvallaprestakall

Einar Jónsson:

Jeg býst við, að það taki fleiri en jeg eftir því, hvað þetta þing ætlar að verða einkennilegt á margan hátt, ekki síst í því, að skyld eða samskonar mál reka sig hvert á annað, eru ýmist samþ. eða feld, án þess að það sje nokkur regla eða sanngirni á bak við. Fyrir stuttu var lagt mikið kapp á að samþ. þetta frv., en nú er snúið við blaðinu. Frv. er hjer á ferð um að stofna nýtt prestakall í Selvogsþingum. Jeg, sem talsvert kunnugur maður, get ekki álitið, að meiri þörf sje á því en að viðhalda hinu forna Þingvallaprestakalli. Því hefir verið haldið fram, að Þingvallaprestakall væri mjög fáment. Það mun rjett vera, en Selvogsprestakall er líka fáment, þó að jeg geti ekki borið það nákvæmlega saman. Og það er ekkert meiri þörf á að stofna nýtt prestakall í Selvogsþingum, en viðhalda Þingvallaprestakalli. Það er síður en svo erfiðara fyrir prestinn í Arnarbæli að þjóna Selvogsþingum, heldur en fyrir prestinn á Mosfelli að þjóna Þingvallaprestakalli. Þetta rekur sig hvað á annað, og væri að sjálfsögðu rjettast að vera ekki með neina breytingu frá gamalli venju. Það lítur út fyrir, að hæstv. stjórn og þeir, sem með þessi mál fara, athugi ekkert, hvað á undan er gengið í mörgum málum.

Það má svipað segja um marga liði í tolla- og skattalögjöfinni, sem nú liggja fyrir breytingar á; þar er verið að hringla tollunum til, af einu og á annað, án þess að þar ráði nokkur sanngirni um. Þetta þing ætlar að verða einkennilegt að því leyti, að láta mál fara eftir vilja og hálfgerðum hleypidómum einstakra manna, en lítið er fylgt þeirri góðu og gömlu reglu um athugun á því, sem trúa mætti að færi eins vel framvegis eins og verið hefir. Jeg held þess vegna, að hv. þm. Dal. hafi komist einna rjettast að orði, þegar hann mintist á beina sleggjudóma, því að sannarlega má kalla, að þeir sjeu hjer á ferð, en sanngirni lítil. Annars hefir mjer fundist hv. þm. Vestm. athuga þetta mál af mestri ró og skynsemi.

Það er líka hart, þegar þing er búið standa það lengi, sem nú er, að heill dagur skuli vera tekinn til að þrátta um, hvort vísa skuli einu ljelegu máli í nefnd. Það var kallað einfalt í fyrstu, en þó var það loks rætt eins og stórt alvörumál og það umfangsmikið, að full þörf var að vísa því í nefnd.

Jeg veit, að samkv. þingsköpum á að binda sig við það mál, sem fyrir liggur, en í þessum málum er ómögulegt að komast hjá að minnast á ýmislegt, enda leyfa sjer ýmsir stærri menn að gera slíkt, og það á óviðfeldinn hátt. Jeg býst við, að hv. þdm. hafi tekið eftir því, hvað hæstv. dómsmrh. nefndi oft hv. 1. þm. G.-K. (BK) með nafni hjer í hv. deild. Einnig þykir mjer óviðkunnanlegt, þegar presturinn á Þingvöllum er dreginn inn í þessar umræður, eða persóna hans. Alt er það á þessa sveifina.

Jeg er ekki í nokkrum vafa um það, að það er verið að gera þetta fólk í Þingvallasókn prestslaust. Það getur verið, að menn segi, að landið sje eins vel sett með miklu færri presta og jafnvel enga. En maður gæti þá eins hugsað sjer, að við gætum komist af án þess að hafa nokkra landsstjórn, enda kemur frá henni fátt gott nú orðið.