13.03.1928
Neðri deild: 46. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í B-deild Alþingistíðinda. (200)
1. mál, fjárlög 1929
Ásgeir Ásgeirsson:
Um XXVIII. brtt. á þskj. 435 þarf jeg ekki að eyða mörgum orðum. Hv. deildarmönnum mun kunnugt um ungan og efnilegan mann, að nafni Magnús Jónsson. Hann lauk stúdentsprófi síðastl. vor, með því að lesa tvo bekki á einum vetri. En sökum þess fjekk hann ekki svo hátt próf, að hann gæti orðið aðnjótandi hins almenna stúdentastyrks, er honum að dómi kennaranna hefði áreiðanlega verið veittur, ef hann hefði, eins og venja er, lesið einn bekk í einu. Hann er nú kominn til Parísar og les þar franska tungu, og jeg vænti því, að háttv. deildarmenn greiði atkv. með þessum litla styrk handa honum, því að það getur ekki talist rjett að láta hann gjalda þess, að hann hefir gert það á einu ári, sem aðrir gera á tveimur.
Þá er 54. brtt. á sama þskj. einnig frá mjer. Hún er um 1000 kr. námsstyrk til Guðlaugs Rósinkranssonar. Hann hefir dvalið tvö ár í Stokkhólmi við nám og stundað það af hinum mesta dugnaði og fengið ágætan vitnisburð. Mun hann nota vel þann styrk, er hann hlýtur.
Svipað má segja um styrkinn til Ólafs Kristjánssonar til að halda uppi kenslu í esperanto. Hann hefir sýnt hinn mesta áhuga á því að útbreiða þekkingu á þessu máli; hann hefir kent það fjölda manna, og oft fyrir litla borgun.
Þá er 40. brtt. á sama þskj., sem við hv. þm. Ísaf. (HG) flytjum saman. Hún er þess efnis, að Guðmundi Hagalín rithöfundi verði veitt staða við bókasafnið á Ísafirði. Um þetta er fordæmi, þar sem Davíð Stefánssyni skáldi frá Fagraskógi var veitt bókavarðarstaða við amtsbókasafnið á Akureyri. Þetta tel jeg, að sje fyrirmynd, sem sje þess verð, að henni sje fylgt, og þegar hjer er fetað í fótspor þeirra góðu manna, sem settu Davíð Stefánsson í öndvegi bókmenta á Akureyri, þá er þess að vænta, að hv. þdm. verði ljúft að fylgja þessari till. Guðmundur Hagalín hefir sýnt það, að hann er þess maklegur, að honum sje gert kleift að setjast að á Vestfjörðum. Þar er ætt hans og þaðan eru sögur hans, og þar mun hann halda áfram að rita, aðeins með betri aðstöðu en hann hefir haft hingað til. Með þessari till. er tvent gert í einu. Annarsvegar er almenningi í þessu hjeraði látin í tje leiðbeining um bækur, og hinsvegar er ungum og efnilegum rithöfundi hjálpað svo, að honum ætti að vera nokkurnveginn lífvænlegt, en það mun tæpast vera að öðrum kosti.
Þá er ein till., sem snertir kjördæmi mitt. Hún er um alt að 25 þús. kr. lán úr viðlagasjóði til byggingar rafstöðvar á Flateyri, ef fje er fyrir hendi. Á Flateyri er rafstöð, rekin af einstökum mönnum, en nú hyggst hreppurinn að taka hana að sjer. Get jeg fullvissað hv. þdm. um það, að þarna er nóg reynsla fyrir hendi um reksturirn, svo að menn þurfa ekki að vera hræddir um, að hreppurinn sje hjer að ana út í neina vitleysu. Það er ekki fastákveðið enn, hvort notað verður vjelaafl eða foss, sem er 3–4 km. frá kauptúninu, en um það verður farið eftir umsögn sjerfróðra manna. — Jeg vona, að hv. deild láti Flateyrarhrepp njóta sömu rjettinda og aðrir hreppar hafa áður notið í þessu efni. Mun ekki ástæða til að vantreysta hæstv. stj. til þess, að hún veiti ekki lánið, nema nægileg trygging sje fyrir hendi af hreppsins hálfu.
Auk þessara brtt., sem jeg hefi nú getið, er nafn mitt ekki á mörgum brtt., en jeg vildi þó einnig minnast lítið eitt á 33. brtt., frá hv. þm. Borgf. (PO) og hv. þm. Mýr. (BA), um 1000 kr. styrk til aukningar á bókasafni Hvítárbakkaskólans. Jeg býst við því, að bókasöfn geri hvergi meira gagn en einmitt við alþýðuskólana, en það er enn svo um flesta eða alla unglinga- og alþýðuskóla vora, að bókasöfn þeirra eru mjög ófullkomin, og jeg veit, að þau muni vaxa hægt, ef styrkur er ekki veittur til þeirra.
Jeg leyfi mjer því að mæla með brtt. minni á þskj. 468 við þessa till. þessara hv. þm. Sú till. mín fer lengra en brtt. þeirra, og þakka jeg þeim því fyrir, að þeir hafa fallist á till. mína og hafa lýst yfir fylgi sínu við hana.