27.03.1928
Sameinað þing: 6. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í D-deild Alþingistíðinda. (2022)

119. mál, landsspítali

Jón Baldvinsson:

Jeg vil aðeins segja nokkur orð til árjettingar því, sem hv. 2. þm. Reykv. (HjV) tók fram.

Þegar fjárlagafrv. var lagt fyrir þingið, var sýnilegt, að með þeirri fjárveitingu, er þar var til byggingar landsspítala, mundi vart hugsanlegt, að hægt yrði að ljúka við bygginguna fyrir 1930, án meira fjárframlags; og því er þessi tillaga fram komin, til þess að láta stjórnina vita, að þingið telji rjett, að lán sje tekið til byggingarinnar, ef ekki verður hægt að leggja fram nægilegt fje úr ríkissjóði.

Af því að mjer fanst felast í ræðu hv. 2. landsk. (IHB) títuprjónsstingur til okkar flm. tillögunnar um það, að við hefðum óboðnir hlaupið fram fyrir skjöldu í þessu máli, vil jeg láta þess getið, að við Jafnaðarmenn teljum okkur hafa haft allmikil afskifti af þessu máli áður, því jeg veit ekki betur en að það væri verkalýðsfjelögin hjer í Reykjavík, sem stuðluðu að því, að á sínum tíma var ákveðin lóð undir landsspítalann, og sömuleiðis voru það fulltrúar Alþýðuflokksins í bæjarstjórn Reykjavíkur, sem studdu að því, að samkomulag náðist milli bæjarstjórnarinnar og ríkisstjórnarinnar um lóðina. Þá má og geta þess, að á þinginu 1922 var flutt till. af alþýðuflokksfulltrúa, til þess að ýta á eftir málinu, og síðan hafa alþýðuflokksmenn oft látið mál þetta til sín taka, og má því til sönnunar t. d. geta þess, að alþýðuflokksmaður var einn af flm. að þeirri fjárveitingu, sem fyrst komst í gegnum þingið til byggingar landsspítalans. Jeg játa fúslega, að hv. 2. landsk. (IHB) hefir gert mikið fyrir þetta mál, en þingmaðurinn verður að virða okkur það til vorkunnar, þótt við látum málið til okkar taka, þar sem við þykjumst líka hafa gert töluvert fyrir það áður. Og hvað það snertir, að till. þessi kom ekki fram fyr en 20. febr., þá er það ekkert ámælisvert, því að það er meira að segja ekki venja, að þáltill. komi fram fyr en seint á þingtímanum, og jeg vil um leið nota tækifærið til þess að þakka hæstv. forseta sameinaðs þings (MT) fyrir það, hve fljótt hann brá við að taka till. þessa á dagskrá, eftir að ósk um það var beint til hans.

Þá vil jeg taka það fram, að mjer finst undarlegt að fara að blanda samningsrofum inn í þessar umræður nú, því að jeg finn enga ástæðu til þess. Jeg álít sem sje, að þingið hljóti að vera þannig skipað á hverjum tíma, að stjórnin verði að fara eftir vilja þess.

Út af ræðu hæstv. fjmrh. (MK) vil jeg taka það fram, að jeg býst ekki við, að hann hafi verið að beina því til okkar flm. till., að við hefðum verið að tala um samningsrof af hálfu stjórnarinnar í þessu máli, því að við höfum ekkert sagt í þá átt. Jeg er þvert á móti þakklátur hæstv. ráðh. fyrir þau loforð, sem hann gaf fyrir hönd stj., að aðalbyggingin skyldi verða fullgerð snemma á árinu 1930, enda þótt viðbótarbyggingarnar verði bygðar seinna.

Sje jeg svo ekki ástæðu til þess að hafa þessi orð mín fleiri. Hv. 2. þm. Reykv. (HjV) hefir talað fyrir till. sjálfri. En í henni stendur, eins og kunnugt er, að stjórninni heimilist að taka lán til spítalabyggingarinnar, ef þörf gerist. Með öðrum orðum, ef stj. hefir ekki nægilegt fje fyrir hendi, þá er ætlast til, að hún noti heimildarlögin frá 1919.