29.03.1928
Neðri deild: 60. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í D-deild Alþingistíðinda. (2036)

94. mál, frystihús og bygging nýs kæliskips

Ólafur Thors:

Jeg hafði ætlað mjer aðallega að ræða um þá hlið þessa máls, sem jeg tel vita að sjávarútveginum. En hv. aðalflm. (MG) gat þess, að jeg myndi fara nokkru lengra, og skal jeg nú verða við því, sem jeg verð að telja ósk frá hans hendi í þeim efnum.

Jeg lít svo á, að till. þessi feli í sjer meinabót bæði fyrir Sjávarútveg og landbúnað, og skal jeg þá víkja nokkrum orðum að þeirri hlið hennar, sem veit að landbúnaðinum, að svo miklu leyti sem jeg hefi þekkingu til þess, en tel þó, að hjer sjeu margir þm. í þessari hv. deild, sem eru betur að sjer um þá hlið málsins heldur en jeg.

Það er eins og menn vita, að á undanförnum árum hafa verið gerðar allítarlegar tilraunir um útflutning á frystu kjöti. Hefir Samband ísl. samvinnufjelaga haft alla forgöngu í því máli, með tilstyrk ríkissjóðs.

Árið 1925 var, eftir því sem jeg best veit, fyrsta stóra sporið stigið á þessari braut. Þá voru fluttir til Bretlands 6000 kindarskrokkar, og leigði S. Í. S. til þess kæliskip. Árangurinn af þessari tilraun var ekki sem bestur. Bar þar margt til, m. a. það, að S. Í. S. þurfti að kosta ærnu fje til að breyta þessu skipi og bæta það, en sá kostnaður lagðist á hina útfluttu vöru.

Næsta tilraun var gerð árið eftir, og hafði S. Í. S. þá einnig forgöngu, með tilstyrk ríkissjóðs. Þá var leigt skip, sem flutti, að jeg hygg, 11000 kindarskrokka til Bretlands. Árangurinn varð þá miklu betri og, að því er jeg hygg, allviðunanlegur. Á þinginu sama ár var svo samþykt frv., sem þáverandi atvmrh., núverandi 1. þm. Skagf. (MG), lagði fyrir þingið, um heimild handa ríkisstjórninni til þess að semja við Eimskipafjelag Íslands um framlag og ábyrgð ríkissjóðs, ef fjelagið vildi byggja kæliskip, en það er óþarfi að segja þá sögu lengri, því að menn vita. það, að Eimskipafjelagið hefir eignast ágætt skip og í alla staði vel hæft til þessara flutninga.

Á þinginu 1926 var heimilað að veita sýslufjelögum viðlagasjóðslán til að byggja frystihús. Hafa nú þegar verið reist nokkur slík hús, og með því má þá segja, að kerfið sje fullgert, svo langt sem það nær. Á síðastliðnu hausti hófst svo útflutningur á frystu kjöti með Brúarfossi, er fór tvær ferðir og flutti þá í fyrri ferðinni um 14½ þús. skrokka, en í hinni síðari eitthvað 9 þús. Þetta kjöt seldist vel, í fyrri ferðinni mjög vel, í síðari ferðinni sæmilega í alla staði.

Eftir þeim upplýsingum, sem jeg hefi getað aflað mjer, má víst með fullri vissu staðhæfa, að verðið á þessu kjöti síðastliðið haust hefir verið hærra en meðalverð á útfluttu saltkjöti í ár. Þeir, sem kunnugir eru byrjunarörðugleikum slíkrar starfsemi, sem hjer er um að ræða, munu fúslega játa, að við höfum fulla ástæðu til að gleðjast yfir þeim árangri, sem við höfum náð með svo vægu verði, því að það er svo um þetta sem alt annað, að öll byrjun er erfið, og jeg tel, að það sje álit þeirra manna, sem eru betur kunnugir þessu máli en jeg, að það orki ekki tvímælis, að það beri að halda lengra á þessari braut en orðið er, en að því miðar tillaga hv. 1. þm. Skagf. (MG) og mín.

Það er alkunna, að á undanförnum árum hafa Norðmenn keypt langmest af því kjöti, sem út hefir verið flutt hjeðan. Viðskiftin hafa þó oft verið svo, að við höfum ekki haft ástæðu til að una vel við það verð, sem við höfum fengið, en við höfum ekki átt kost á að beina þeirri sölu annað en til Noregs. Það er að vísu svo, að íslenskir bændur selja ekki nema nokkurn hluta af sínu kjöti til útlanda, en verðlagið á kjötinu hjer hefir bygst og byggist á verðlaginu í Noregi, og hafa bændur því átt allan sinn hag í þessum efnum undir Noregi.

Jeg skal ekki fara út í víðtækar hugleiðingar um það, hver voði þeim er búinn, sem eru ofurseldir einum kaupanda, og hve valt er að byggja atvinnurekstur á slíkum horfum, en aðeins benda á það, að þörf Norðmanna fyrir íslenskt kjöt fer smáminkandi, og auk þess er það staðreynd, að með þessu er verðlag kjötsins mjög háð atvinnufyrirbrigðum og ýmsu öðru þar í landi.

Málið horfir þá þannig við, að þótt við nytum óskiftrar velvildar Norðmanna í þessu efni, þá stafar okkur mikil hætta af því að eiga ekki í önnur horn að venda um sölu á kjötinu, en svo er hitt og staðreynd, að mikið skortir á, að Norðmenn hafi ávalt beitt okkur sanngirni og sýnt okkur velvild í þessu efni. Hvernig sem á málið er litið, þá er það bert, að kjötframleiðslunni er mikill hagnaður að því, að nýs markaðar sje leitað fyrir kjötið, því að jafnvel þótt ekki færi nema nokkur hluti af íslensku kjöti til Englands, þá leiðir af því, að það kjöt, sem selt verður til Noregs, hækkar í verði, samkvæmt hinni almennu reglu um framboð og eftirspurn. Auk þess skal jeg leyfa mjer að vekja athygli hv. þm. á því, að sú reynsla, sem þegar er fengin, gefur vonir um það, að fyrir fryst kjöt muni nást töluvert betra verð en við höfum átt við að búa undanfarið fyrir saltkjötið. Mjer er það náttúrlega ljóst, að hjer þarf ýmislegt að gera, til þess að við getum náð því marki, sem hjer er um að ræða, svo sem að vanda vöruna, og margvíslegar aðrar ráðstafanir, sem jeg ekki finn ástæðu til, með minni takmörkuðu þekkingu, að vera að tíunda hjer, vegna þess að málið er í höndum þeirra manna, sem hafa betri þekkingu á slíkum hlutum heldur en jeg. Jeg var annars í Lundúnum, þegar Brúarfoss var staddur þar með fyrri sendinguna. Lagði jeg mig þá fram til að kynnast málinu, og verð jeg að segja það, að það er full ástæða til að gera sjer góðar vonir um þessar tilraunir Íslendinga til að afla sjer nýs markaðar fyrir kjöt sitt.

Um þá hlið málsins, sem veit að frystihúsunum, vil jeg benda á það, að ef lán verða veitt til þeirra bygginga, sem nú þegar hefir verið sótt um lán til, þá munu vera til frystihús, sem geta fryst um 90000 kindarskrokka. (Forsrh. TrÞ: Hvað miðar hv, þm. (ÓTh) við, að hafi verið sótt um lán til margra húsa?). Mjer er aðeins kunnugt um slíkar lánbeiðnir úr Húnavatns-, Skagafjarðar- og Norður-Þingeyjarsýslum. (Forsrh. TrÞ: Það hefir verið sótt frá 5–6 stöðum í viðbót.). Það er þá því frekar ástæða til að fara fram á það, að bygt verði nýtt skip, því að þeim mun fleiri sem frystihúsin verða, því meiri farkost þarf að hafa, ef vel á að vera.

En jeg vildi leyfa mjer að benda ríkisstjórninni á það, að áður en snúið verður að því að byggja skipið, sýnist mjer, að vel geti komið til mála að athuga, hvort mundi betur svara kostnaði, að stækka yfirleitt geymslupláss húsanna, eða að auka farkostinn. Mjer finst skórinn aðallega kreppa að í því, að geymslupláss húsanna sjeu ekki það stór, að sæmileg not verði að húsunum, nema því aðeins, að fráflutningar geti orðið nokkuð liðugir, en það er aðeins reikningsdæmi, sem jeg vil biðja þá að athuga, sem um málið fjalla, hvort hagkvæmara muni vera að leggja fje til geymsluklefanna, svo að þeir geti orðið hæfilega stórir, eða að leggja fje í farkostinn. Jeg bendi á, að sá kostnaður fylgir því að auka ekki farkostinn, að með því mun þurfa að standast langvarandi kostnað af geymslu kjötsins í geymsluklefunum. Það þarf að halda því hæfilega köldu, og því er samfara nokkur kostnaður, en hinsvegar er talsverður kostur að þurfa ekki að vera háður markaðsverði í Bretlandi aðeins á einum eða tveimur mánuðum, en geta dreift vörunni yfir lengri tíma. Það mundi að vísu vera hægt að koma kjötinu í geymslu í Bretlandi, en það er hvorttveggja, að þeirra geymsla mundi verða okkur dýrari en ef kjötið væri geymt hjer, og eins mun það vera betra, að varan liggi heldur í framleiðslulandinu, heldur en að hún sje komin í neyslulandið, því að það er eins og hún þyngi frekar markaðinn, ef hún er komin þangað.

Jeg leyfi mjer ennfremur að benda hæstv. stjórn á það, ef hún vill fylgja ráði ekki fróðari manns en jeg er, að það orkar jafnan tvímælis, hve langt beri að fara í því að byggja frystihús, því að það kemur náttúrlega að því, að hentara þykir að hætta að frysta og fara að salta kjötið, því að jeg geri ráð fyrir, að verð kjöts muni hækka, þegar framleiðsla saltkjöts minkar, og gæti þá vel farið svo, t. d. þegar helmingur kjötframleiðslunnar er frystur og hinn helmingurinn saltaður, að þá þætti óhagur að því að fara lengra í því að frysta, en haganlegra að snúa sjer að söltuninni. Þetta er mál til athugunar fyrir þá, sem sjerþekkingu hafa, en mjer finst skaðlaust, þó að við, sem höfum verslunarþekkingu á öðrum sviðum, látum skoðanir okkar í ljós.

Þá vil jeg víkja að þeirri hliðinni, sem snertir sjávarútveginn. Á Alþingi 1922 var, eins og menn muna, samþykt fiskiveiðalöggjöf sú, sem nú gildir, og jeg tel þessi lög vera að ýmsu leyti hin merkustu lög í atvinnulöggjöf okkar Íslendinga. Í þessum lögum eru, saman dregin ýms eldri ákvæði, sem áður höfðu gilt hjer á landi, og við þau bætt ýmsum ákvæðum, sem að mestu eru sniðin eftir löggjöf annara þjóða, sem líkt stendur á fyrir. Vil jeg þar sjerstaklega benda á Norðmenn. Með þessari löggjöf voru Íslendingum trygð ýms forrjettindi fram yfir erlendar þjóðir, til varnar því, að Íslendingar yrðu undir í samkepninni við þá, sem stærri voru og sterkari og hafa um margt betri aðstöðu. Framkvæmd þessara laga hefir yfirleitt tekist mjög sæmilega, þó með þeirri undantekningu, að á Norðurlandi hefir framkvæmdin verið alveg ósæmileg, og að því er jeg tel, okkur til meira en lítillar hneisu. Norðmenn hafa hafst við á íslenskum höfnum langt fram yfir það, sem lögin heimila; jeg get leitt rök að mörgu, sem fram hefir farið og mjer þykir ver hafa farið, en jeg álít, ýmsra hluta vegna, ekki rjett að vera að skýra frá því, sjerstaklega á þessum opna fundi, því að margt er þess eðlis, að við höfum ekki neinn sóma af því, en getum haft mikinn vanda af, ef öll kurl koma til grafar. Ef spurt verður um það, hvers vegna Íslendingar hafa sýnt þessa linkind í framkvæmd löggjafarinnar gegn Norðmönnum, getur vel verið, að mörgum yrði stirt um svar, ef mönnum væri ekki í fersku minni, hverju fram fór þegar Norðmenn árið 1922 hækkuðu kjöttollinn. Þá var lagður á þungatollur, en ekki verðtollur, og sá tollur lenti náttúrlega langþyngst á þeim, sem ódýrasta kjötið höfðu selt, en það voru Íslendingar. Nú tel jeg víst, að við Íslendingar hefðum fengið rjettingu okkar mála, ef norskir útgerðarmenn hefðu ekki risið upp og reynt að kljúfa þann varnarvegg, sem við Íslendingar höfum reist okkur með fiskiveiðalöggjöfinni, og því ver, norskir stjórnmálamenn tóku undir kröfur hinna norsku útgerðarmanna. Að mínu áliti eru þessar kröfur Norðmanna jafnundarlegar og þær eru kuldalegar. Við höfðum ekki gert annað en að semja lög handa okkur, sem Norðmenn áður höfðu talið sjer nauðsynleg, en þeir, sem bæði voru stærri og sterkari, gerðu nú tilraun til að knýja á þar, sem veikast var fyrir. Þeir reyndu að nota sjer örðugleika íslenskra bænda til þess að rjúfa þann varnargarð, sem við höfum talið okkur nauðsynlegt að reisa kringum annan aðalatvinnuveg okkar, til þess að freista, hvort þeim mætti ekki takast að hafa hlunnindi af örðugleikum okkar. Framkoma Norðmanna verður berust, þegar hún er athuguð samanborið við það, hvernig Englendingarhafa komið fram við okkur í þessum málum, því að það er alkunna, að Norðmenn þurfa á íslensku kjöti að halda, en þó lögðu þeir á það háan skatt, miklu hærri en á annað kjöt, sem inn var flutt.

Bretar leggja engan toll á fisk okkar, og þó spillir hann auðvitað verði á þeim fiski, er þeir afla sjálfir. Má að vísu segja, að neytendurnir græði á þessu, þó fiskframleiðendur tapi á því. En það er fullkomlega á færi enskra útgerðarmana að meina okkur að leggja upp fiskinn, ef þeir vildu það viðhafa. Þannig meinuðu þeir Þjóðverjum að leggja upp fisk í Hull. Samkomulagið á milli útgerðarmanna og hafnarverkamanna þar var ekki verra en svo, að þegar útgerðarmenn stungu upp á því að meina Þjóðverjum að leggja upp fiskinn, neituðu verkamennirnir að afferma skipin.

Útgerðarmenn í Englandi leyfa oss að leggja þar upp tollfrían fisk, enda þótt það sje þeim til meins, en Norðmenn heimta sjerstök fríðindi fyrir það, að tollur þeirra á íslensku kjöti sje ekki hlutfallslega hærri en á öðru kjöti. Þetta getur ekki annað kallast en hin mesta óbilgirni. Við Íslendingar stóðum allir saman í kjöttollsmálinu, og það varð til þess, að Norðmenn ljetu undan, en þrátt fyrir það hefir ávalt verið sýnd linkind í framkvæmd fiskveiðalaganna af ótta við Norðmenn. Þetta er oss mjög hættulegt, og hin norska hagnýting landhelginnar hlýtur að spilla stórkostlega fyrir síldveiði landsmanna sjálfra. Væru lögin látin gilda með fullri harðneskju, væri aðstaða þeirra hjer við land öll önnur og lakari í samkepninni um síldveiðarnar.

Hitt er þó enn hættulegra, að aðrar þjóðir geta krafist sama rjettar og Norðmenn njóta, og ef slíkar kröfur kæmu fram, gætum við alls ekki neitað þeim. Af því myndi stafa hinn mesti þjóðarvoði. Hugsum okkur, að erlendir togarar fengju þau fríðindi að mega hafa íslenska landhelgi og hafnir til afnota. Þá held jeg, að sannarlegt hörmungarástand stæði fyrir dyrum. Fyrsta afleiðingin af hingaðkomu erlendra togara yrði sú, að landauðn myndi í sveitum landsins, kaupið á mölinni myndi hækka og fólkið streyma í verstöðvarnar. Næsta sporið yrði það, að hinir íslensku atvinnurekendur, sem um margt eru ver settir en þeir erlendu, stæðust ekki að greiða svo hátt kaup til frambúðar, þar sem vara þeirra lækkaði í verði við aukna framleiðslu.

Fiskmarkaðurinn er ekki rýmri en svo, að lítil aukning á framleiðslunni getur haft stórkostlegt verðfall í för með sjer. Íslensku atvinnurekendurnir myndu heltast úr lestinni. Hvað síðan tæki við, er ekki gott að segja. Líklegast er, að kaupið fjelli fljótt aftur, þegar útlendingar yrðu einir um hituna. Hjervistartími erlendu atvinnurekendanna myndi svo takmarkast af því, hvort afraksturinn af atvinnurekstrinum svaraði til vona þeirra eða eigi. Ef svo yrði eigi, sem varla myndi verða til lengdar, yrði afleiðingin af öllu saman að lokum sú, að þjóðarbúskapur okkar hefði verið lagður í rústir, en ekkert komið í staðinn.

Það er því þjóðarnauðsyn, að við getum orðið óháðir Norðmönnum um kjötmarkað okkar sem allra fyrst.

Fyrsti áfanginn á þeirri leið er sá, að koma kjötinu annað en til Noregs. Annar áfanginn er að herða á framkvæmd fiskveiðalaganna, og þriðji eða sami áfanginn er að koma upp góðri lögreglu norðanlands um síldveiðitímann, til þess að mál okkar á þessu sviði komist í gott horf. Þá þarf og að semja sjerstök lög um leppmensku. Hún er önnur aðalmeinsemdin í þessum efnum, eins og nú standa sakir. Hingað til hefir verið tekið vægum tökum á henni. En mjer þætti mikilsvert, að stjórnin hlutaðist sem fyrst til um, að lögð yrði fyrir Alþingi lög um leppmenskuna.

Jeg vil að lokum láta þá ósk í ljós, að hv. deild samþ. einróma þessa till., sem er borin fram til að ráða bót á sameiginlegu meini landbúnaðar og sjávarútvegs, svo að fyrsti áfanginn náist sem allra fyrst.