29.03.1928
Neðri deild: 60. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í D-deild Alþingistíðinda. (2037)
94. mál, frystihús og bygging nýs kæliskips
Fors- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg vil geta þess, viðvíkjandi þeirri hlið till., sem að bændum snýr, að stjórnin hefir þegar ákveðið að lána til frystihúsabygginga úti um land fje, sem svarar því a. m. k., sem nefnt er í till. þessari. Geri jeg ráð fyrir, að stjórnin fari að tillögum Sambands íslenskra samvinnufjelaga um það, hvar frystihúsin skulu reist, og um skipakost til að flytja kjötið hjeðan. Um þá hlið málsins, sem að sjávarútveginum veit, skal jeg vera fús til að tala við hv. 2. flm. (ÓTh) og aðra fulltrúa sjávarútvegarins og taka á móti ráðleggingum í því efni. Jeg er einnig fús á að ræða um framkvæmd fiskiveiðalaganna, en jeg tel betur fara á, að það sje gert utan við þetta mál og þennan sal.