13.03.1928
Neðri deild: 46. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 926 í B-deild Alþingistíðinda. (205)

1. mál, fjárlög 1929

Jóhann Jósefsson:

Jeg ætla að segja nokkur orð um tvær brtt., sem jeg á á þskj. 435,LXXXII. Þær eru báðar við 22. gr. fjárlagafrv. og fjalla um lánsheimild til Vestmannaeyjabæjar. Sú fyrri fer fram á 25 þús. kr. til þess að fullgera leikfimihús í sambandi við barnaskólann. Þetta leikfimihús hefir verið í smíðum í tvö ár, en vegna fjarskorts hefir ekki verið hægt að ljúka við það. Barnaskólinn er stór — hann tekur um 300 börn — og er mjög bagalegt að hafa enga leikfimikenslu. Jeg skal ekki fjölyrða um þetta. Það er augljóst, að jafnstór barnaskóli og barnaskólinn í Vestmannaeyjum nýtur sín hvergi nærri til fulls, meðan leikfimikensla verður að mæta afgangi. Jeg vona, að háttv. þm. viðurkenni þetta og samþykki tillöguna.

Í seinni liðnum er líka farið fram á lánveitingu til Vestmannaeyja, en í öðru skyni. Undanfarin ár hefir verið mikill bagi að vöntun vatns í Vestmannaeyjum. Þingið hefir á sínum tíma veitt fje til að rannsaka fyrirhugaða vatnsveitu. Nú er þeim undirbúningi lokið og sá verkfræðingur, er við hann hefir fengist, Jón Ísleifsson, hefir komist að þeirri niðurstöðu, að vatns megi að vísu afla, en hætt sje við, að það verði takmarkaður forði og varla hugsanlegt meira en svo, að nægja mundi sem neysluvatn. En eins og menn sjá, er það ekki nægilegt til þvotta, einkum fiskþvotta. Auk þess er rjett að segja það eins og það er, að eftir tillögum Jóns Ísleifssonar yrði vatnsveitufyrirtækið svo kostnaðarsamt, að kaupstaðurinn mun ekki sjá sjer fært að leggja út í það í nánustu framtíð. Fyrirkomulagið er að vísu slæmt eins og nú er, en þó er það svo, að með þeim tilfæringum, Sem eyjaskeggjar hafa, má segja, að enn bjargist þeir, en það er vitaskuld ekki nema tímaspursmál, þar til breyta verður um og koma á reglulegri vatnsveitu. En fiskþvotturinn er orðinn eyjaskeggjum mikið áhyggjuefni á síðari árum, eftir hví sem aflinn eykst. Það er svo erfitt að hafa altaf nóg sjóvatn, að fiskimatsmenn og jafnvel landlæknir eru farnir að telja það mikið vandræðamál. Meðalafli tveggja síðustu ára er um 30 þús. skpd., en það er 1/6 af öllum fiskafla landsins, svo að mjög er nauðsynlegt, að verkunin fari eins vel úr hendi og unt er. En í vegi fyrir því er enginn þröskuldur annar en sá, að ekki fæst nægilega mikið hreint þvottavatn, annaðhvort ferkst vatn eða sjóvatn. Sú hugmynd er því mjög ofarlega hjá mönnum, að koma upp sjerstakri sjóveitu með tilliti til fiskverkunarinnar. Þetta var í fyrstu hugsað sem einkafyrirtæki, en nú hefir verið horfið frá því. Notendur vatnsins eru nærfelt allir bæjarbúar, svo að fyrirtækið er að því leyti sambærilegt við vatnsveitu annarsstaðar. Fiskiþingið hefir haft þetta vandamál til meðferðar. Þegar 1926 var málið töluvert rannsakað; einkum voru fengnar umsagnir fiskimatsmanna um það, hvað af gæti hlotist, ef ekki væri til nóg af hreinum sjó við hendina, þegar fiskurinn væri verkaður, og eins um hitt, hver tök væru á að bæta úr því. Fiskiþingið skipaði nefnd í málið, og hún bar fram tillögu, sem Fiskiþingið samþykti í einu hljóði. Með leyfi hæstv. forseta ætla jeg að lesa hana upp:

„Fiskiþingið mælir eindregið með því við Alþingi, að ítarleg tilraun verði gerð til þess, að vatnsleiðsla komist á fót í Vestmannaeyjum og sjóleiðsla til fiskþvotta, ef eigi finst nægilegt vatn þar í landi“.

Þetta var árið 1926, á þeim tíma, sem vatnsveituhugmyndin var mjög ofarlega í hugum manna. Fiskiþingið hugsaði sjer bæði vatnsleiðslu og sjóleiðslu. En reynslan hefir kent oss eyjaskeggjum, að mesta áherslu beri að leggja á það, að altaf sje nægur sjóforði til fiskþvotta. Hugmyndin er sú, að mikill sjógeymir verði steyptur þar, sem vel næst til hreins sjávar. Hann á að rúma 2000 tunnur, sem yrði eins dags forði. Í hann yrði síðan dælt hreinum sjó og frá honum lægju æðar inn í hvert fiskhús. Bærinn hugsar sjer að hafa þetta fyrirtæki sjerstakt í bæjarrekstrinum, líkt og til dæmis rafstöð. Eiga notendur að greiða sjóskatt, þannig að fyrirtækið beri sig sjálft. En til þess að koma því á fót, verður bærinn að fá lán. Það eru því tilmæli bæjarstjórnarinnar, að Alþingi samþykki lán til þessa nauðsynjafyrirtækis, sem stendur beint í sambandi við framleiðslu Vestmannaeyinga. Um vexti og afborganir er stilt svo í hóf, að jeg vænti, að hv. dm. hafi þar ekkert við að athuga.

Þá vil jeg, fyrir hönd sjútvn., segja nokkur orð um tillögu, sem nefndin flytur á sama þskj., XXI. lið, um styrk til Árna Friðrikssonar. Forseti Fiskifjelagsins kom á fund í sjútvn. og mæltist til þess, að nefndin kæmi fram með þessa till., og gaf henni nauðsynlegar upplýsingar. — Hjer er um að ræða mann, sem hefir nú í 4½ ár stundað nám við Kaupmannahafnarháskóla í dýrafræði og lagt sjerstaklega stund á fiskifræði. Hann hefir notið styrks úr ríkissjóði, 100 kr. danskra á mánuði. Þess utan hefir hann fengið nokkurn styrk frá háskólanum, sem hann nemur við. Auk þess hefir hann verið dálítið styrktur af Dansk-islandsk Forbunds-Fond. Þessa styrks frá íslenska ríkinu nýtur hann nú ekki lengur. Og nú er svo komið, að hann treystist ekki til þess að ljúka því námi, sem hann hefir stundað í 4½ ár undanfarið, nema hann fái þennan 1200 kr. styrk á ári áfram.

Það er rjett að taka það fram, að eftir að hann misti af styrknum frá íslenska ríkinu, hefir prófessor Joh. Smith styrkt hann með því að leyfa honum að vinna að rannsóknum sínum á Carlsbergs Laboratorium. Það hefir hann gert af því þessi danski vísindamaður hefir sjerstaklega gott álit á þessum unga námsmanni.

Nefndin kynti sjer, eftir viðtal við forseta Fiskifjelagsins, álit Bjarna Sæmundssonar fiskifræðings. Tók hann það skýrt fram, að hann væri meðmæltur því, að þessi ungi maður væri styrktur í því skyni, að hann gæti tekið upp hans starf, er sín misti við og hann þreyttist og drægi sig í hlje. Það stendur sem sje alveg sjerstaklega á um þennan mann, er hjer um ræðir. Hann var sjómaður í upphafi og stundaði sjó hin fyrstu námsár sín. Auk þess hefir hann öll skilyrði til þess að verða ágætur vísindamaður á sviði fiskifræðinnar. Hann hefir sýnt sig vera efnilegan mann og líklegan til þess að verða eftirmaður eða samstarfsmaður Bjarna Sæmundssonar. Hann á nú kost á að taka þátt í fiskirannsóknum hjá Dönum í leiðangri, sem þeir ætla að gera út til Austurlanda. Ef hann hverfur að því ráði, má eins búast við, að hann sje tapaður Íslandi sem starfsmaður í þessari grein, að minsta kosti fyrst um sinn. En það má ekki svo til ganga; við verðum að tryggja okkur starfskrafta þessa vísindamannsefnis þegar að námi loknu. Því hefir Fiskiþingið veitt 2500 kr. á ári 1929–1930 til fiskirannsókna. Og það kom greinilega í ljós í umræðum um þessa fjárveiting, að þeir höfðu þennan mann sjerstaklega í huga. Það er einsætt, að þennan efnilega námsmann beri að styrkja áfram af hálfu ríkisins þann stutta tíma, sem hann á eftir til þess að ljúka námi og geta starfað hjá þjóð sinni. Við eigum ekki völ á öðrum manni, er hafi eins góð skilyrði til þess að taka við af Bjarna Sæmundssyni; það er enginn eins vel hæfur til þess og einmitt þessi ungi maður. Það er rjett að taka það fram, að Bjarni hefir sjálfur látið það álit uppi og sagði um leið um annan mann, Pálma Hannesson, að hann hefði eftir sínum ráðum beint sjer meira að vatnarannsóknum, en þennan mann, sem nú er sótt um styrk fyrir, hefði hann haft í huga til þess að fást við fiskirannsóknir á hafinu. Fiskirannsóknum fleygir fram hjá öllum nágrannaþjóðunum, og Íslendingar geta tæplega gert minna en það, að hafa að minsta kosti einn frambærilegan mann til þess að vinna þann hluta þessa merkilega starfs, sem hlýtur að falla í þeirra skaut. Við höfum hingað til notið mikils góðs af fiskirannsóknum Dana hjer við land. En þess verður að sjálfsögðu af okkur krafist, að við leggjum nokkuð af mörkum eða starfskröftum sjálfir; það ætti okkur að vera því ljúfara, sem þjóðin á alla sína tilveru undir fiskiveiðunum. Þeim mun hægara ætti það að vera að leggja fram sinn skerf á þessu sviði, sem gera má ráð fyrir, að við höfum ráð á nokkrum skipum, sem bregða megi fyrir sig til slíkra hluta, sem sje varðskipin. Ríkisstjórnin hefir notað þau til að taka þátt í fiskirannsóknum.

Jeg gat þess áðan, að erindi þetta var sent til hv. fjvn. og hefði farið framhjá henni án þess hún tæki það á sína arma. Jeg vona, að það hafi hvorki orðið óviljandi nje af því, að hún áliti það svo þýðingarlítið, að því væri ekki gaumur gefandi, heldur hafi hún búist við, að sjútvn. tæki það að sjer, eins og nú er raun á orðin.

Jeg vona fyrir hönd sjútvn., að þessari einu brtt. hennar við fjárlögin verði sómi sýndur, ekki okkar vegna, sem sæti eigum í nefndinn, heldur vegna landsins, sem á að njóta starfskrafta þessa ágæta fiskifræðings í framtíðinni.