02.04.1928
Neðri deild: 63. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (2052)
120. mál, vegurinn frá Markarfljóti til Víkur
Flm. (Lárus Helgason):
Það er óþarfi að fylgja þessari litlu till. úr hlaði með langri ræðu. Hún ber með sjer, hvað henni er ætlað að vinna, en það er að rannsaka þennan ákveðna veg, sem svo er gerður frá náttúrunnar hendi, að ekki þarf mjög miklu til hans að kosta, svo að hann sje fær bifreiðum. Það eru aðallega vatnsföllin, sem tálmun valda á þessari leið, og mundi því rannsóknin að mestu fólgin í því að koma sjer niður á, hvernig hægast mundi að brúa þau, og komast eftir, hve mikið það kostar.
Vænti jeg því, að hv. deild sjái sjer fært að samþykkja þessa ályktun, og hirði ekki um að hafa þessi orð fleiri.