17.02.1928
Efri deild: 25. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (2057)

93. mál, niðurfelling útflutningsgjalds af síld

Flm. (Erlingur Friðjónsson):

Þessi till. til þál. er borin fram að ósk þeirra manna, er seldu síld til Rússlands síðastliðið haust.

Hjer er farið fram á það, að felt verði niður útflutningsgjald af þeirri síld, og aðalástæðan, sem færð er fyrir því, er sú, að ekki sje hægt að standast samkepni Norðmanna, sem líka selja síld á rússneskan markað, ef greiða þarf útflutningsgjald af síldinni.

Þar að auki er ekki nema eðlilegt, að ljett sje undir með atvinnurekendum fyrst í stað, þar sem hjer er um nýjan markað að ræða, þar sem varan er óþekt og hlýtur að seljast fyrir lágt verð í fyrstu, eins og raun hefir orðið á. Norðmenn ljetta ekki einungis undir með síldarútflytjendunum norsku með því að láta þá ekki greiða útflutningsgjald af síldinni til Rússlands, heldur gera þeir ýmislegt fleira fyrir þá, sem ef til vill er ekki ástæða til að tala um í þessu sambandi.

Það er heldur ekki ástæða til þess að fjölyrða um reglur annara þjóða í þessum efnum. Það ætti að nægja að minna á þær reglur, sem myndast hafa með okkar þjóð í líku tilfelli. Jeg vil þar benda á sem dæmi, hve mikið var ljett undir með smjörbúunum, þegar þau voru stofnuð. Það var ekki aðeins, að þau þurftu ekkert útflutningsgjald að greiða af því smjöri, sem flutt var til útlanda, heldur voru framleiðendurnir styrktir með allríflegri fjárupphæð. miðað við hvert kíló, er út var flutt. Nú fyrir stuttu voru þeir kjötframleiðendur, er sendu fryst kjöt á enska markaðinn, styrktir með allríflegri fjárupphæð úr ríkissjóði. Þessi tvö dæmi sýna, að það er ekki ranglátt gagnvart öðrum atvinnurekendum, þótt farið sje fram á, að útflutningsgjaldið sje afnumið, að minsta kosti í þetta skifti, þar eð líka söluverð síldarinnar var svo lágt, að það var fyrir neðan framleiðslukostnað. Það má líka gera ráð fyrir því, að ef þessi síld, sem var ca. l/3 af allri þeirri síld, sem var í höndum innlendra framleiðenda, hefði ekki verið seld til Rússlands, þá lægi hún óseld í landinu, og ríkissjóður hefði þá ekki fengið neitt útflutningsgjald af henni, eða að öðrum kosti hefði hún verið seld enn lægra verði, ef ekki hefði verið ljett á markaðinum í Svíþjóð með því að selja hana til Rússlands.

Jeg sje svo ekki ástæðu til þess að fara um mál þetta fleiri orðum við fyrri umræðu þess, en vona, að hv. deild taki því vel og það fái að ganga til síðari umr. og fjhn.