05.03.1928
Efri deild: 39. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í D-deild Alþingistíðinda. (2077)

115. mál, hagskýrslur

Frsm. (Jón Þorláksson):

Jeg ætla ekki að þessu sinni að fara að leggja út í neinar eldhúsdagsumræður. En jeg vil segja, að ef hæstv. fjmrh. (MK) þykist hafa sjeð það í blaði í grein eftir mig, að mönnum hafi verið bætt í skrifstofu fjármálaráðuneytisins, þá hefir hann annaðhvort mislesið eða misskilið orð mín þar. (Fjmrh. KM: Ekki misskilið, það hefir þá verið misprentað). Eða þá að mjer hefir mistekist að rita nægilega skýrt til þess, að hann skildi það rjett. Jeg mun hafa getið eitthvað um það, að bætt hafi verið starfsmönnum á öðrum sviðum, sem heyra undir fjármáladeildina, og átt þar við tollgæslumennina nýskipuðu. Það er nokkuð annað atriði, og verður ef til vill tækifæri til að minnast á það síðar.

Viðvíkjandi verslunarskýrslunum og kröfum þeim, er sýslumenn hafa gert fyrir söfnun þeirra, skal jeg geta þess, að þegar sá síður var hafinn að fá þessar skýrslur mánaðarlega, þá var það gert til reynslu fyrst í stað. Sýslumönnum var jafnframt tilkynt, að þeim yrði fyrst um sinn greiddur sá kostnaður, sem af skýrslusöfnuninni leiddi fyrir þá, eftir sanngjörnum reikningi. En jafnframt var ákveðið, að ef þessi regla yrði tekin upp til frambúðar, þá yrði tekið tillit til þessa starfs, þegar skrifstofufjeð yrði ákveðið, sem dómsmálaráðherra gerir samkv. launalögunum frá 1919. Og þar sem þetta reynsluár er nú liðið, þá á þessi kostnaður að vera kominn inn á þennan lið með öðrum skrifstofukostnaði. Jeg er ekki viðbúinn að svara því nú á stundinni, hvort búið hafi verið að úrskurða alla þessa reikninga, er stjórnarskiftin fóru fram.

Till. þessi er fram borin til þess, að skýrslur þessar komi fram fyr frá hagstofunni en verið hefir og landsmönnum komi þær að fyllri notum.

Það er rjett, að framkvæmd þessarar till. hefir nokkurn kostnað í för með sjer, enda er gert ráð fyrir því í nál., að til þess þurfi að verja 9–10 þús. kr. Og sú aðferð, að bera fram þessa þáltill., var tekin upp til þess, að þingið tæki á sig ábyrgð á þeim kostnaði, er af þessu leiddi, og þá ekki síst flm. till. En ábyrgðinni þar með ljett af viðkomandi ráðherra.