05.03.1928
Efri deild: 39. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í D-deild Alþingistíðinda. (2079)

115. mál, hagskýrslur

Frsm. (Jón Þorláksson):

Þar sem jeg hefi ekki nauðsynleg gögn við höndina, þá er jeg ekki vel við þessari spurningu búinn. En það er rjett, sem hæstv. fjmrh. (MK) ályktar, að sýslumönnunum beri einnig þóknun annað árið fyrir þetta starf sitt. Jeg hygg, að ákveðið hafi verið að láta þetta standa til reynslu, þar til komið var fram á annað árið, en að ákvörðun um að halda þessu fyrirkomulagi áfram hafi ekki verið tekin fyr en eftir að skrifstofukostnaður hafði verið ákveðinn fyrir annað árið. Að sumir, sem reikninga sendu, hafi ekki fengið þá greidda að fullu, er nú ekki neitt nýtt, og það er ekki einsdæmi um þetta málefni. Þetta kemur oft fyrir, þegar menn eiga að gefa reikninga, og meðal annars þegar þessir sömu embættismenn senda reikninga sína. Það verður ekki komist hjá því að færa suma slíka reikninga niður m. a. til þess að öðrum, sem hafa gert lægri kröfur fyrir svipað starf, sje ekki sýnd ósanngirni.