14.03.1928
Neðri deild: 47. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 970 í B-deild Alþingistíðinda. (211)
1. mál, fjárlög 1929
Ólafur Thors:
Jeg á aðeins 2 smábrtt. við þennan kafla fjárlagafrv., báðar á þskj. 435. Sú fyrri, sem er nr. LI, hnígur að því að hækka styrkinn til listasafnshúss Einars Jónssonar í 4 þús. kr. úr 3500 kr. Þessi fjárveiting var 4 þús. 1926, en 1927 var hún lækkuð niður í 3500 kr., en það hefir sýnt sig að vera of lítið. Og þar sem hjer er farið fram á svona litla hækkun í svona góðu augnamiði, þá vona jeg, að jeg þurfi ekki að tala frekar fyrir henni, til þess að hv. deild samþykki hana.
2. stafliður fer fram á, að fyrir 4 stundir komi 2 stundir. Í þessu felst sú ósk, að safnið sje ekki opið nema einu sinni í viku, aðeins á sunnudögum. Á miðvikudögum koma að jafnaði 2–4 gestir, en á sunnudögum 30–50. Kostnaður við hverja sýningu er 4 krónur, og þykir slíkt óþarfur kostnaðarauki fyrir miðvikudagana, þegar ekki fleiri sækja, og ekki er búist við, að þurfi að koma neinum til óþæginda.
Þá á jeg aðra brtt. á sama þskj., LXXXVII. lið, sem fer fram á að heimila stjórninni að veita Sveini Gíslasyni 10 þús. kr. eftirgjöf af 30 þús. kr. kaupverði jarðarinnar Leirvogstungu í Mosfellssveit. Svo er mál með vexti, að þessi maður keypti jörðina fyrir nokkrum árum, meðan dýrtíðin var sem mest, eða 1924, fyrir 30 þús. kr. Síðan kaupin fóru fram, hefir aðstaðan til þess að reka bú á þessari jörð með sæmilegum hagnaði breytst ákaflega mikið, og þá fyrst og fremst vegna þess, að verð mjólkur hefir fallið mjög mikið. En aðalframleiðsluvara þessa bús er mjólk, sem seld er hingað í bæinn. Jeg hygg, að mjólkurverðið hafi verið, þegar kaupin fóru fram, 60–70 aurar lítrinn, en nú er hann 40 aurar, og má gera ráð fyrir, að lækki enn meira á næstunni. Maðurinn, sem jörðina keypti, er efnalítill og hefir því bága aðstöðu til að standast greiðslu þessarar skuldar, nema hann fái einhverja tilhliðrun um kaupverðið. Jörðin er metin að fasteignamati 8 þús. kr., hús á jörðinni eru metin á 6. þúsund. En þau hús á ábúandinn sjálfur. Þess má geta, að aðalræktun túnsins, sem jörðinni fylgir, hefir þessi sami ábúandi framkvæmt, svo að hann væri verður að njóta góðs fyrir.
Það er náttúrlega ekki mín meining að hallmæla ríkisstjórninni á hverjum tíma fyrir það að halda vel á eignum ríkissjóðs og farga þeim ekki nema fyrir fult andvirði. En hitt þykir mjer ekki ósennilegt, að ríkissjóður, ekki síður en einstaklingar, sjái sjer fært, þegar fátækir aðiljar hafa keypt því verði, sem innan skamms sýnir sig að vera alt of hátt, áð sýna þá tilhliðrunarsemi og slá eitthvað af andvirðinu. Það er þetta, sem farið er fram á hjer og jeg þykist með fullri sanngirni geta mælt með við hv. þd.
Jeg vil þá til enn frekari sönnunar mínu máli aðeins geta þess, að þetta mál hefir verið lagt fyrir landbn. Nd. og hún einhuga mælt með því, að þessi afsláttur verði veittur. Jeg hirði ekki um að lesa alt brjef landbn. upp, en ætla aðeins, með leyfi hæstv. forseta, að lesa niðurlagið. Það hljóðar þannig:
„Nefndin leggur til, að landsstjórninni heimilist að gefa greindum bónda eftir af hinu umsamda kaupverði þessarar jarðar 10 þús. kr. og að breyta árlegri greiðslu af jarðarverðinu hjer eftir í samræmi við það, að hið upphaflega verð hafi verið 20 þús. kr.“
Jeg skal ennfremur geta þess, að samkv. brjefi landbn. telur hún, eftir að hún hefir rannsakað málið, að sannvirði þessarar jarðar muni vera hæfilega sett 15–16 þús. kr.
Hjer hefir um þetta mál fjallað sá aðili, sem til þess er bær og maður verður undir slíkum kringumstæðum að taka meira mark á en þótt einstakir þingmenn beri fram umsagnir sínar. Því að það er rjett, sem hæstv. fjmrh. sagði í ræðu í gær, að hv. þm. flytja oft fram ýmsar málaleitanir, sem jafnvel þeim sjálfum þykir ekki alveg sjálfsagt að nái samþykki, en gera það vegna þess, að þeir telja sjer skylt að verða við málaleitun umbjóðenda sinna, kjósendanna. Þess vegna er það rjett, sem hæstv. ráðh. sagði, að það ber ekki altaf að taka slíkar óskir með sjerstakri alvöru. En hjer er sem sagt dómur hv. landbn. óskiftrar um þetta mál, sem ætti að nægja til að sýna, að sanngirni fylgir málaleitun. Jeg vænti því, að hv. deild líti annarsvegar á fátækt kaupanda, en hinsvegar á gerbreytingu á verðmæti hins keypta frá því kaupin fóru fram og til þessa dags.
Jeg hefi ekki flutt fleiri brtt. við þennan kafla fjárlagafrv. að öðru en því, að jeg er meðflm. að tveimur brtt.
Fyrir annari þeirra, nefnilega fjárveitingu til Guðmundar Kambans skálds, hefir þegar verið talað svo vel af hv. frsm. (BA), að jeg finn enga ástæðu að bæta neinu við. En um hina vildi jeg fara nokkrum orðum, sem er XXVI. liður og fer fram á, að Leifi Ásgeirssyni sje veittur viðbótarstyrkur, 600 kr., til þess að stunda stærðfræði- og landmælinganám í Göttingen.
Jeg hefi nú aldrei heyrt eða sjeð þennan unga mann og ber á hann engin kensl önnur en þau, sem jeg hefi aflað mjer nú í sambandi við þessa málaleitun hans. En þau eru líka alveg næg til þess, að jeg hefi með ánægju gerst meðflutningsmaður að þessari till. og boðist til að mæla fyrir henni.
Þessi ungi maður lauk prófi síðastl. vor frá mentaskólanum. En svo undarlega stendur þó á, að hann hefir aldrei setið þar nje í neinum skóla, sem ríkið kostar, og hefir því ríkið í raun og veru aldrei lagt honum eyri af mörkum til náms. Er þess vegna nokkur ástæða til að fara fram á, að ríkið leggi honum nú meiri viðbótarstyrk heldur en öðrum námsmönnum, sem styrk hljóta. Þessi maður er þannig efnum búinn, að óhugsandi er, að hann geti lokið námi, ef hann fær ekki meiri styrk en hann nú nýtur frá ríkinu. En hitt má og telja víst, að fái hann viðbótarstyrk, mun hann ljúka námi.
Með þeim mun betri samvisku ber jeg fram þessa till., að það er viðurkent, að okkur Íslendingum er þörf að koma okkur upp manni í þessari fræðigrein; því að það hlýtur að bera að því, að við tökum við þar, sem Danir hættu landmælingum. Það er ekki vansalaust, ef við látum jafnstóran hluta landsins verða órannsakaðan og nú er. En um námshæfileika þessa eina Íslendings, sem þetta nám stundar, vil jeg segja það, að þrátt fyrir það, að hann hefir engrar kenslu notið í skólum ríkisins, og þrátt fyrir það, að hann hefir orðið að vinna fyrir sjer með kenslu jafnframt náminu, hefir hann samt hlotið hæstu einkunn, sem gefin hefir verið, við þau próf, sem hann hefir tekið. En þetta er svo frábærlega vel gert, að það mun vera algerlega einsdæmi. Það er æfinlega svo, að sá þykir með afbrigðum vel að sjer og ágætlega að sjer ger um námshæfileika, sem nær með utanskólanámi prófi vel fyrir ofan meðallag þeirrar einkunnar, sem skólapiltar hljóta. En þegar þessi maður hefir náð hæstu einkunn allra þeirra, sem gefnar eru við slík próf, þá ætti hann fyrir það eitt að verðskulda, að ríkið sýndi honum meiri sóma en öðrum námsmönnum. Vona jeg, að hv. deild sjái sjer fært að samþ. þessa till., þar sem svo gild rök liggja fyrir sem jeg hefi borið fram, og mun jeg þó síst hafa sagt um of.
Þá á jeg ekki fleiri brtt. við þennan kafla fjárlaganna. Og þó að ástæða væri til að segja nokkuð meira í tilefni af ræðu hv. þm. Ísaf. (HG) í gær, þá ætla jeg að leiða það hjá mjer að þessu sinni og vita, hvort ekki verða aðrir til þess að andmæla því, að ríkissjóður taki á sig þá ábyrgð, sem till. hv. þm. fer fram á. En verði ekki aðrir til þess, mun mjer þykja rjett, að hún nái ekki svo lögfestu, að enginn mæli henni í gegn.