29.03.1928
Efri deild: 60. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í D-deild Alþingistíðinda. (2137)
148. mál, milliþinganefnd í tolla- og skattalöggjöf
Flm. (Ingvar Pálmason):
Meiri hl. fjhn. hefir leyft sjer að bera þessa þáltill. fram. Tilefni hennar er, að nauðsyn beri til þess að koma skattaog tollakerfi okkar í það horf, að það verði stöðugra og eðlilegra en það er nú. Nú líður varla svo þing, að eigi sje eitthvað hreyft við þessum málum. Auk þess munu bæði þm. og flestir aðrir hafa á meðvitundinni, að þessi löggjöf sje ekki sem rjettlátust. Það er einnig ein orsökin til hinna tíðu breytinga. Þessar breytingar valda því, að meiri og meiri ringulreið kemst á löggjöfina með hverju þingi, sem líður. Hjer þarf því að finna fastan grundvöll, sem hægt er að byggja á.
Jeg veit, að hv. deild lítur svo á, að þessi ráðstöfun sje rjettmæt, og sje því ekki ástæðu til að hafa mál mitt lengra. Þó vil jeg geta þess, að meiri hl. fjhn. telur eigi þörf á að vísa máli þessu til nefndar, þar sem sú nefnd, er fengi það til meðferðar, yrði fjhn. Þó gerum við það eigi að kappsmáli, hvort það fer til nefndar eða ekki.