14.03.1928
Neðri deild: 47. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 981 í B-deild Alþingistíðinda. (215)

1. mál, fjárlög 1929

Magnús Guðmundsson:

Mjer þykir verst, að hæstv. dómsmrh. skuli ekki vera viðstaddur, því honum þurfti jeg aðallega að svara út af mótmælum hans gegn orðabókarstyrknum, en fyrst hann er ekki við, skal jeg fara stutt út í það. Þessi maður, sem orðabókarstyrkinn hefir haft, hefir ekki sagt starfinu lausu, og það væri því sama og að setja hann frá fyrirvaralaust og án þess að sjá honum fyrir öðru, ef hann væri sviftur þessum styrk. Það kom fram hjá hæstv. fjmrh., að þessi maður mundi eiga rjett til eftirlauna samkvæmt öðrum lögum frá sínum prestskaparárum. En það hygg jeg, að ekki sje, því hann ljet hvorki af prestskap sökum elli eða vanheilsu, en þær 2 ástæður munu einar veita mönnum rjett til eftirlauna. En verði nú till. 2. þm. Reykv. (HjV) samþ., þá fær hann eins há laun og hann hefir nú, en það getur þó varla verið verra en ekki neitt, sem hann starfar að orðabókinni, og þá nær að láta hann hafa fje með því skilyrði, að hann vinni að henni, heldur en veita honum jafnmikla upphæð án þess nokkuð komi í staðinn.

Af því að hæstv. dómsmrh. er ekki viðstaddur, get jeg ekki farið neitt út í það, sem hann sagði um pólitíska hlutdrægni, en annars hefði jeg haft gaman að tala um það efni við hann, því að hlutdrægari mann í stjórnmálum en ráðh. sjálfan hefi jeg ekki þekt. Annars þakka jeg honum fyrir það, að hann hefir mælt með 2 öðrum till., sem jeg er flm. að. En mjög þótti honum skifta í tvö horn með þessar brtt. mínar, því eina kvað hann vera þá verstu, er komið hefði fram, en aðra einhverja þá bestu. Jeg skal geta þess í þessu sambandi, að ef það á að fella niður þennan styrk til orðabókarinnar, þá finst mjer rjett að fella líka niður styrkinn til Þórbergs Þórðarsonar, sem hann hefir til þess að safna orðum úr alþýðumáli, því að starf hans á að vera til styrktar orðabókinni og á því rjettilega að sæta sömu kjörum og hún.

Út af svari hæstv. fjmrh. viðvíkjandi eftirgjöfum á lánum vil jeg leyfa mjer að spyrja, hvort enn sje óákveðið, hvort þær skuli greiðast úr viðlagasjóði eða ríkissjóði. Jeg get að vísu viðurkent, að þetta sjeu í raun og veru 2 vasar á sömu flíkinni, en þó kynni jeg betur við, að ekki væri gengið á viðlagasjóðinn. Það er ekki nema rjettmæt ræktarsemi við þá forfeður okkar, sem stofnuðu hann, að halda honum óskertum. En ef mikið af lánum, er veitt hafa verið úr honum, eru gefin eftir, þá líður ekki á löngu áður hann verður stórskertur. En ef ekki á að skerða viðlagasjóð, er nauðsynlegt að taka þessar fjárveitingar upp í fjárlögin sjálf. Sú aðferð, er hæstv. fjmrh. nefndi, að veita árlega í fjárlögum þær greiðslur, sem viðlagasjóður mundi hafa átt að fá, ef ekkert hefði verið eftir gefið, er að vísu möguleg, en það þýðir ekki annað en að ríkissjóður fær lán hjá viðlagasjóði, og það þykir mjer heldur óviðfeldin aðferð.

Þá vil jeg minnast nokkrum orðum á síðustu brtt. á þskj. 460, frá hæstv. forsrh., sem hefir nú alveg tekið það mál að sjer. Mjer kemur það undarlega fyrir, að koma skuli fram till. um að lána svona mikið út á þessi skip Ísfirðinga. Jeg varð fyrir miklum árásum fyrir nokkrum dögum fyrir að hafa lánað út á eitt skip 1/3 verðs, en hjer er farið fram á, að veittir verði 4/5 verðs eins og þau eru fullbúin til veiða. En hvað þýðir „fullbúin til veiða“ hjer? Er þar átt við, að veiðarfæri sjeu talin með, eða er þar átt við skipin eins og þau koma til landsins?

Eins og menn vita, þarf oft að lagfæra og bæta ýmislegu við áður en þau leggja út til veiða. (HG: Eins og þau koma til landsins). Mjer þykir vænt um að fá þessu slegið föstu, að það eru aðeins skipin sjálf, en ekki veiðarfærin. Annars mætti vel segja, að skipin væru ekki fullbúin til veiða nema veiðarfæri fylgdu með. Því hefir verið svarað til í þessu máli, að hjer væri aðeins um aukatrygging að ræða. En jeg er sannfærður um það, að ef svo fer, að fjelagið getur ekki staðið í skilum, þá verður tæplega farið að ganga að kaupstaðnum, og þá verður það ríkissjóður, sem borgar brúsann.

Hv. þm. Ísaf. (HG) nefndi sem fordæmi til þessa lánið til togaranna 1921. Það má vera, að einhver líking sje þar á milli, en jeg vil minna á, að sú ábyrgð var ekki notuð nærri eins mikið og heimildin leyfði, en þó sýndi það sig, að hún var hættuleg, því ríkissjóður varð fyrir talsverðum skaða vegna ábyrgðar fyrir eitt fjelag, eins og kunnugt er. Þess vegna er ekki hægt að nefna ábyrgðina 1921 sem dæmi þess, að ábyrgð sje hættulaus, enda kom það skýrt fram í ræðu hv. þm. Ísaf., að ábyrgðin væri alls ekki hættulaus. Hv. þm. nefndi líka aðra ábyrgðarheimild, en hún var aldrei notuð, því stjórnin taldi það ekki rjett. Hann sagði líka, að þessu svipaði til samvinnufjelagsskapar bænda.

Það má vel vera, að einhver líking sje þar á milli, en á þessu er sá mikli munur, að samvinnufjelög bænda hafa aldrei farið fram á, að ríkissjóður gengi í ábyrgð fyrir þau. Og það, sem gerir það, að jeg greiði atkv. gegn þessari till., er ekki það, að jeg óttist svo mjög upphæð tapsins á þessu eina láni, heldur óttast jeg, að fleiri komi á eftir og að þetta sje aðeins byrjun. Og ef svo fer, að margir bætast við með slíkar beiðnir, þá getur orðið erfitt að greina á milli og sjá, hvar þörfin er mest.

Hv. þm. sagði, að hjer væri aðeins um tilraun að ræða. Af því leiðir, að ekki verður gengið lengra í þessa átt fyr en sjeð er, hvernig hún hepnast, og verð jeg að álíta, að það sje skoðun hv. þm., ef því er ekki andmælt. Þetta er að vísu bót í máli, — en hve lengi á þetta þá að teljast vera á tilraunastiginu? Jeg hygg, að það þurfi nokkuð mörg ár. Og þegar koma ár eins og 1919, þá þarf mörg ár til þess að vega á móti því eina ári. Það mátti heita, að það ár setti þjóðarbúskapinn yfir um. Og það var ekki aðeins á Ísafirði, sem illa fór, heldur og miklu víðar. — Jeg býst við, að það sje ekki til neins að mæla gegn þessari till., en jeg vil aðeins undirstrika það, að þetta er af flm. hugsað sem tilraun og því ekki meiningin að styðja fleiri slíkar beiðnir fyr en sjeð er, hvernig tekst með þessa. Jeg legg mikla áherslu á þetta, því það væri undarlegt, ef ekki kæmu þegar á næsta þingi fleiri slíkar. Og þá gæti farið svo, að við værum bráðlega sokknir lengra niður í ábyrgðir en við kærðum okkur um.