16.04.1928
Neðri deild: 73. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 118 í D-deild Alþingistíðinda. (2155)

147. mál, berklavarnalög

Flm. (Jörundur Brynjólfsson*):

Eins og kunnugt er, hefir miklu fje verið varið til berklavarna á undanförnum árum, frá því að lög um það voru sett 1921.

Í 5 ár, frá 1922 til 1926, hafa um 5 milj. kr. verið greiddar úr ríkissjóði til berklavarna. Árið 1922 voru greiddar kr. 131.000, 1923 um kr. 280.000, 1924 kr. 371.000, 1925 um kr. 530.000 og árið 1926 rúmar kr. 500,000. Eins og sjá má, hefir kostnaðurinn farið vaxandi, þó hann að vísu hafi orðið ámóta mikill tvö síðustu árin. Við þessu væri ekkert að segja, ef nauðsyn krefði og geta ríkissjóðs gerði það kleift. En þeir, sem til þekkja, vita, að ríkissjóður hefir í mörg horn að líta, og óttast, að hann fái ekki rönd við reist. Mikið af gjöldum ríkissjóðs eru orðin föst útgjöld, og ef illa árar og tekjur bregðast, þá má hreint og beint búast við fjárþroti. Þetta gefur tilefni til að íhuga, hvort ekki megi komast hjá að greiða eitthvað af þessum gjöldum eða draga úr þeim.

Þessari veiki er að vísu svo varið, að mikið er í sölur leggjandi til þess að reisa rönd við útbreiðslu hennar. Má ekki horfa í útgjöldin, ef annars er ekki kostur. En það er fullyrt, að allmikið fje sje greitt úr ríkissjóði til berklavarna, sem þó ekki sje full nauðsyn á, og að margir þeir, sem styrks njóta, mundu geta staðið straum af kostnaðinum af eigin ramleik. Við því væri ekki mikið að segja, ef getu ríkissjóðs væri ekki ofboðið með þessu. Er svo er nú ástatt um fjárhag landsins, að taka verður tillit til þess. Það er ekki meining okkar flm., að ver verði sjeð fyrir vörnunum en nú er, heldur verði lögin svo úr garði gerð, að betur sje trygt að þeir njóti ekki ríkisstyrks, er ekki þurfa á honum að halda. Jeg vona, að menn hafi ekki á móti því, að þetta verði athugað vandlega. Tillagan beinist eingöngu að því að koma í veg fyrir misnotkun fjárins, en alls ekki að draga úr nauðsynlegum vörnum.

Jeg fer ekki út í það, hvort þessar varnir hafa reynst vel, hvað heilsufarinu viðvíkur eða ekki. Það munu sjerfræðingar fjalla um, ef lögin verða tekin til endurskoðunar.

Jeg skal ekki fjölyrða frekar um þessa tillögu. Málið er ofur einfalt, og það er ekki nema von til, að menn gerist óþolinmóðir að hlýða á langar ræður. Menn hafa og ýmsu að sinna nú í þinglokin.

(* Ræðuhndr. óyfirlesið.)