16.04.1928
Neðri deild: 73. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í D-deild Alþingistíðinda. (2161)
147. mál, berklavarnalög
Hannes Jónsson* Jeg mun greiða þessari tillögu atkvæði, en kemst ekki hjá að gera nokkra grein fyrir, af hverju jeg geri það. Jeg felst ekki á það hjá hv. flm., að ríkið greiði verulegar upphæðir, sem því ber ekki að greiða, nema því aðeins, að þær sjeu ranglega tilfærðar. En það er ekki hægt að kenna lögunum. Jeg vil líka heldur, að greitt sje of mikið úr ríkissjóði í þessu skyni en of lítið. Því að ef gengið er á rjett einstaklinganna í þessu efni, þá er örugt, að það verður til þess að draga úr áhuga þeirra fyrir því að koma sínum nánustu á sjúkrahús, þar sem þeir gætu læknast eða a. m. k. komist hjá því að sýkja aðra. En sýkingarhættan er höfuðatriðið. Því er betra, að ríkissjóður greiði of mikið en of lítið. Það getur komið honum margfaldlega í koll síðar, ef of lítið er greitt. — En jeg hygg, að tillagan geti orðið til þess herða á hæstv. stjórn um eftirlitið með því, að veikindi fólksins verði einstökum embættismönnum ekki stórkostleg fjeþúfa, og því greiði jeg henni atkvæði mitt.
(* Ræðuhndr. óyfirlesið.)