16.04.1928
Neðri deild: 73. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í D-deild Alþingistíðinda. (2187)
146. mál, vátrygging sveitabæja
Jón Auðunn Jónsson*):
Það er ekki óeðlilegt, þó að breyta þurfi þessum lögum, en að því verður að gæta, að þau voru bygð á þeim grundvelli að gefa mönnum kost á að vátryggja eignir sínar gegn lágu iðgjaldi. Einmitt af því, hversu erfitt var að tryggja hjá erlendum fjelögum, fyrir það, hvað iðgjöldin voru há, var þessi leið farin. Með öðru móti var ekki hægt að fá lægri iðgjöld en eru hjá erlendu fjelögunum. Þeirra taxti er bygður á langri reynslu, og það hefir sýnt sig í útlöndum, að með því að láta menn eiga nokkuð í hættu sjálfa, fást ótrúlega lág iðgjöld. Aftur á móti verður að taka hærri iðgjöld, ef menn eiga ekki að bera neina áhættu sjálfir. Það þarf ekki að vera af því, að menn kveiki í hjá sjer, en þeir líta betur eftir og forðast meira eldhættuna. Jeg álít því, að ef ekki á að hækka iðgjöldin að miklum mun, megi ekki fella það niður, að menn beri sjálfir nokkra áhættu, og helst ekki minna en 1/6. Brunabótafjelag Íslands hefir einnig þetta skilyrði, þó að iðgjöldin hjá því sjeu í mörgum tilfellum hærri en hjá útlendu fjelögunum, enda hefir því græðst fje. Hitt er rjett, að það er nauðsynlegt, að menn geti fengið að vátryggja að fullu öll þau hús, sem búið er í. En því er svo varið á mörgum stöðum, að sjóðirnir taka ekki stærstu húsin, álíta það of mikla áhættu. Jeg held því, að það sje best að gæta hófs, í fyrsta lagi með því að halda því ákvæði, að sjóðirnir geti neitað að taka hús, ef þeim lítst, og í öðru lagi með því að sleppa ekki niður áhættu einstaklinganna sjálfra. Því það er viðurkent, að sje því breytt, þá verður að hækka iðgjöldin.
(* Ræðuhndr. óyfirlesið.)