16.04.1928
Neðri deild: 73. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í D-deild Alþingistíðinda. (2191)

146. mál, vátrygging sveitabæja

Jón Auðunn Jónsson*):

Jeg hefi ekkert á móti því, að þetta sje rannsakað. En það er vissa, bygð á erlendri reynslu og innlendri, að iðgjöldin verða hærri, ef beinar tryggingar verða teknar upp. Þau munu verða nálega þau sömu og hjá þeim erlendu fjelögum, sem hjer starfa. Og það er altaf hægt, ef menn vilja ekki vátryggja hjá sjóðum sveitarfjelaganna, eða ef hrepparnir vilja ekki taka húsin í vátryggingu, að leita til þeirra fjelaga, sem hjer eru starfandi. En það er athugunarmál, hvort ekki er rjett að stofna hjer tryggingarsjóð, er tæki að sjer allar beinar tryggingar.