16.04.1928
Neðri deild: 73. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í D-deild Alþingistíðinda. (2213)

158. mál, útvarp

Magnús Jónsson:

Jeg vildi aðeins bæta örfáum orðum við ræðu hv. flm. (GunnS). Eins og hv. þdm. er kunnugt, var útvarpsstöðinni hjer lokað fyrir nokkrum dögum, og hefir það komið sjer afleitlega fyrir alla þá, sem útvarpstæki hafa keypt sjer. Jeg þekki ekki sögu útvarpsmálsins og fer því ekkert inn á hana. Jeg hefi ekki heldur útvarpstæki sjálfur, og gerir því ekkert til nje frá fyrir mig persónulega, hvort útvarpsstarfsemi er hjer rekin eða ekki. En fjelag það, sem rekið hefir útvarpsstarfsemi hjer að undanförnu, hefir lagt fram stórfje í þessu skyni, sem alt hefir tapast. Fjelagið var fyrir alllöngu að þrotum komið, og hefir það rekið stöðina miklu lengur en það ætlaði sjer, vegna þess, að forgöngumenn þess vildu ekki, að útvarpsstarfsemi fjelli hjer niður áður en ríkið tæki hana á sína arma. Meðan á samningum við ríkisstjórnina hefir staðið, hefir tapið verið upp undir 100 kr. á dag, og það fje hafa nokkrir fjelagsmenn lagt fram úr eigin vasa. Nú sýnist svo sem einhver snurða hafi hlaupið á þessa samninga, og það er því líkast, sem tilraun hafi verið gerð til þess að koma málinu inn í flokkadeilur í stjórnmálum. En það væri mjög óheppilegt, ef svo tækist til.

Útvarpsfjelagið vildi samvinnu við ríkisstjórnina um að reisa stóra stöð, og vildi komast að samningum um það, að landssíminn innheimti gjöldin fyrir hana. En þegar ekki náðist samkomulag um þetta, vildi fjelagið, að ríkið keypti stöð þess og starfrækti hana fyrst í stað, svo að útvarpsstarfsemi fjelli ekki niður þar til hin stóra útvarpsstöð ríkisins kemur. Gegn þessu fór fjelagið fram á ýmsar greiðslur, og skál enginn dómur á það lagður, hve aðgengilegir þeir kostir voru. Jeg geri ráð fyrir, að þar hafi aðeins verið um fyrsta boð að ræða, og að hægt hefði verið að komast að betri kjörum, þar sem hæstv. stjórn hafði öll trompin á hendinni. En mér sýnist ómaklegt að láta þetta fjelag líða meira en það hefir gert. Þeir hafa tapað 130 þús. krónum og standa auk þess í persónulegum ábyrgðum fyrir 60–70 þús. kr., að jeg ætla. Þeir hafa rekið stöðina síðan með samskotafje og úr eigin vasa. Það er ómaklegt að láta þá setja meiri peninga í súginn en nauðsynlegt er, ef ekkert á úr að verða.

Jeg hefi sjeð í brjefi til stjórnarinnar, að h. f. Útvarp gekst fyrir því, að rannsakað var, hve stór væntanleg stöð þyrfti að vera, og á ýmsan annan hátt hefir fjelagið safnað efni, sem verða má að gagni, þegar farið verður að reka útvarp í stórum stíl. Sjerstaklega er það mikilsvert atriði, að fjelagið hefir komið því til leiðar, að nú eru hjer á landi um 1000 útvarpsnotendur. Ef útvarpið fellur niður um tíma, má búast við, að menn fargi viðtækjum sínum, svo að það erfiði, sem til þess hefir farið að fá menn til þess að nota útvarp, verður árangurslaust. Jeg þekki það sjálfur af tímaritsútgáfu, að það er ekki hlaupið að því að safna 1000 áskrifendum; það kostar tíma, og það kostar fyrirhöfn og fje. Fyrir ríkið væri ekki lítið unnið við það að halda viðtækjunum hjá notendum, ef til ríkisrekstrar kæmi.

Veðurskeyti til verstöðva og skipa hafa að mestu leyti gengið í gegnum útvarpsstöðina, og er í meira lagi bagalegt fyrir þá, sem notið hafa góðs af, að missa nú alt í einu af þeim.

Þá er þó ekkert tekið tillit til þeirra 1000 útvarpsnotenda, sem missa t. d. messur, fyrirlestra o. fl., þótt ekki hafi það þótt alt jafnmerkilegt.

Sjerstaklega vil jeg að lokum óska þess, að þetta mál gæti haldist utan við flokkadeilur. Þetta er menningarmál, sem ætti að vera sameiginlegt áhugamál allra landsmanna. Enda virðist ekki annað sýnt en leitast sje við að halda því utan við pólitískan flokkadrátt, að minsta kosti af sjálfum aðiljum.

Ef þeir hv. þm., sem hjer eru inni núna í svip, og hæstv. stjórn vildi samþykkja þessa till. og síðan yrði hafist handa, þá teldi jeg betur farið en heima setið.

En ef ekkert verður að gert, fara allir þeir peningar til ónýtis, sem eytt hefir verið í útvarpið.