16.04.1928
Neðri deild: 73. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í D-deild Alþingistíðinda. (2217)
158. mál, útvarp
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Þetta, sem hv. 1. þm. Reykv. (MJ) getur tæplega hugsað sjer, er nú einmitt sannleikurinn. Það er ómögulegt að svo stöddu að taka ákvörðun nema til bráðabirgða. Jeg játa, að á undanförnum þingum setti jeg mig ekki sjerstaklega inn í þetta mál, og síðan hefi jeg ekki haft tíma til þess. Auk þess var tilkvödd um málið sjersstök nefnd sjerfróðra manna. Og þegar mál er í sjerfræðinga höndum, er meiningin að taka ekki ákvörðun um það fyr en umsögn þeirra liggur fyrir. Annarsvegar vísa jeg til þess og lýsi því hinsvegar yfir, að jeg er ráðinn í að gera eitthvað.