17.04.1928
Neðri deild: 74. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í D-deild Alþingistíðinda. (2237)
160. mál, gin- og klaufaveiki
Magnús Jónsson:
Mjer finst það dálítið óþægilegt, að hæstv. atvmrh. (TrÞ) skuli ekki vera við, til að segja um það, hvernig hann muni bregðast við þessari þáltill., sem hjer liggur fyrir.
Það er alveg rjett, sem hv. 1. flm. till. (JörB) segir, að hún er alveg bygð á lögunum. En jeg vona, að allir sjái, að það er í raun og veru lítils virði að vera að fella úr gildi aðflutningsbann á mjólkurafurðum, en skora jafnframt á stjórnina að viðhalda banninu, og þegar stjórnin getur eftir sömu lögum bannað hvað sem henni lítst. Það lá hjer fyrir till. um að banna aðflutning á mjólkurafurðum, en sú tillaga var feld, og nú er aftur farið fram á, að aðflutningur á þessum sömu afurðum verði bannaður. Jeg skil satt að segja ekki, hvernig farið er að bjóða sömu þingdeildinni annað eins og þetta. Og jeg veit ekki, hvernig stjórnin á að taka á móti þessari till. á eftir lögunum. Jeg mun því greiða atkv. hinni rökstuddu dagskrá hv. samþm. míns (HjV).