17.04.1928
Neðri deild: 74. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í D-deild Alþingistíðinda. (2239)
160. mál, gin- og klaufaveiki
Magnús Jónsson:
Jeg sje náttúrlega ekki inn í huga allra þdm., en jeg sje inn í minn eigin, og þessi ástæða, sem hv. þm. Borgf. (PO) ber fram, að þetta ákvæði var felt hjer í deildinni, á að minsta kosti ekki við mig, því að jeg hefði ekki orðið glaðari af neinu en ef málið hefði dagað uppi fyrir þessar sakir. En ef það er hinn virkilegi til
gangur með till. að svíkjast aftan að hinni deildinni, þá er slík aðferð með öllu ósæmileg, því ef menn ekki þorðu að ganga svo frá frv. sem þeir helst vildu, af ótta við, að hv. Ed. myndi fella það, þá er þó enn verra að vera að lauma inn í þingið slíkri ályktun sem þessari, eftir að hin deildin getur ekki sint henni, af því að hún hefir nú lokið störfum á þessu þingi. Mjer finst það stappa nærri því að vera ósæmilegt.
Jeg mun greiða atkv. á móti þessari tillögu, af þeirri ástæðu, sem jeg lýsti yfir strax í byrjun, að jeg tel það gagnslaust að samþykkja hana í þeim tilgangi, sem látið er í veðri vaka, en aftur á móti vil jeg af öllum mætti berjast á móti því, að sett sje vernd á einstakar vörur, sem getur stórkostlega hækkað verð þeirra við sjávarsíðuna.