17.04.1928
Neðri deild: 74. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í D-deild Alþingistíðinda. (2241)

160. mál, gin- og klaufaveiki

Pjetur Ottesen:

Jeg vil aðeins segja það, að úr því að farið er að minnast á Ed. í þessu sambandi, þá finst mjer, að það, að Ed. hefir lokið sínum fundum, megi alveg eins skiljast á þann veg, að fengin sje viðurkenning fyrir því frá hennar hálfu, að hún myndi vel geta felt sig við þá afgreiðslu, sem hjer er um að ræða, og álit jeg það mikla yfirbót hjá hv. deild.