09.02.1928
Efri deild: 18. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í D-deild Alþingistíðinda. (2329)
73. mál, bréfaskifti milli stjórna Spánar og Íslands
Flm. (Ingvar Pálmason):
Það er að nokkru leyti tekið fram í ástæðunum fyrir þessari till., hvað því veldur, að hún er borin fram. Þó þykir mjer rjett að fara um hana nokkrum orðum, frekar en þar er gert. Á undanförnum þingum hefi jeg verið nokkuð viðriðinn mál, er snert hafa Spánarsamningana, og á síðasta þingi var jeg flm. að till. um að fækka útsölustöðum Spánarvína. Menn muna sjálfsagt afdrif þeirrar till. Því var þá haldið fram af hæstv. landsstjórn og fyrirrennara hennar, að ekki væri hægt að verða við þessari ósk, með því að það kæmi í bága við Spánarsamningana. Nú er það svo, að sá Spánarsamningur, sem opinberlega hefir verið birtur, er það eina, sem mjer og öðrum meðlimum þjóðfjelagsins er kunnugt í þessu efni, og eftir því sem jeg skil mælt mál, er þar ekki neitt ákvæði um fjölda útsölustaðanna, eða að þeir eigi að vera fleiri en einn. En vitanlega verður að vera einn útsölustaður, úr því að selja á vínin.
Hinsvegar hefir það verið fullyrt, einkum af þeim manni, sem var ráðherra þegar samningurinn gekk í gildi, að það væru samningsrof að fækka útsölustöðunum. Því hefir mjer og fleirum dottið í hug, að ef þetta væri rjett, hlyti það að felast í því, sem fram hefir farið milli stjórna ríkjanna, en hafi þó, af einhverjum sjerstökum ástæðum, ekki verið birt. Að vísu hefir því verið haldið fram, að þýðingin á samningnum sje ekki nákvæm, en jeg og aðrir leikmenn höfum ekki annað að halda okkur að og hljótum að reiða okkur á það, að rjett sje þýtt. En auðvitað er hugsanlegt, að þetta felist í brjefaskiftum milli stjórna ríkjanna, sem fram hafa farið áður en samningurinn var gerður. Ef svo er, þá er auðvitað skylda að birta þjóðinni það, að svo miklu leyti sem leyfilegt má teljast, svo að allur ágreiningur um þetta sje kveðinn niður. En ef það upplýsist, að ekkert sje því til fyrirstöðu, að fækka megi útsölustöðunum, þá er sjálfsagt uð gera það, því að þjóðin vill vera laus við þá. Jeg fæ því ekki annað sjeð en að hvernig sem á er litið sje þessi til. á fullri sanngirni bygð.
Það er varla þess vert að minnast á það, sem eitt dagblað bæjarins sagði fyrir skemstu, að jeg hefði átt að vera svo viti borinn að byrja á því að bera fram þessa till., áður en jeg lagði til, að fækkað væri útsölustöðunum. En eins og Spánarsamningurinn liggur fyrir, verð jeg að segja, að þessi krafa hefir verið fyllilega rjettmæt, — en þegar aðrar leiðir reynast ekki færar, er vitanlega skylt að fara þá, sem þessi till. gerir ráð fyrir. Þetta mál er svo mikilsvert, að jeg tel ekki sæmandi fyrir löggjafarvaldið að draga neina hulu yfir það gagnvart borgurum þjóðfjelagsins. Það er áreiðanlegt, að meiri hl. þjóðarinnar finnur til þess, að Spánarsamningurinn er nauðungarsamningur. Og hvernig sem menn líta á það, hvort óumflýjanlegt hafi verið að taka honum eða ekki, þá er það víst, að allir geta verið sammála um að draga sem mest úr áhrifum hans. Jeg sje ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum. Geri jeg ráð fyrir, að hv. þd. samþykki till. í einu hljóði, því að hún er í alla staði sanngjörn.