09.02.1928
Efri deild: 18. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í D-deild Alþingistíðinda. (2333)
73. mál, bréfaskifti milli stjórna Spánar og Íslands
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Ræða hv. 3. landsk. var mjög merkileg, þótt hún væri ekki löng. Hann tók að sjer það óþarfa verkefni að reyna að sýna, að einhver misskilningur væri innan deilda í stjórnarráðinu um þetta mál. En vínmálin innanlands heyra undir dómsmálaráðuneytið, og því komu templarar eðlilega til mín og beiddust upplýsinga um málið. Mín skoðun er sú, að þarna beri engu að leyna, og jeg veit, að skoðun hæstv. forsrh. (TrÞ) er hin sama um það. — Annað er merkilegt í þessu máli. Stjórn goodtemplara er að mestu skipuð Íhaldsmönnum, og stuðningsmönnum hv. 3. landsk. Þeir óska nú að fá að vita, hvað gerst hefir í þessu máli í tíð undanfarandi stjórna. Það er merkilegt, að hv. 3. landsk. skuli álíta þessa ósk samherja sinna svo syndsamlega, að hann vill ekki ljá henni sinn stuðning. Ef flokkur hans vill ekki taka þátt í þessari rannsókn, þá þýðir það það, að ekkert getur úr henni orðið. Og þá vita þeir menn úti um landið, sem vilja fá að fræðast um þetta mál, hvar þeir eiga aðgang að þeim mönnum, sem leyna vilja öllu um gang málsins.
Jeg skal nota þetta tækifæri til að segja hv. 3. landsk. og öðrum, hvernig í því liggur, sem blöð hv. þm. hafa notað til árásar á mig, að jeg hefi ekki fækkað útsölustöðum Spánarvínanna.
Hv. 3. landsk. vill ekki hreina og óbrotna samvinnu um þetta mál. Hann vill draga sig út úr. Og jeg veit vel, hvað Íhaldsmenn hefðu gert, ef jeg hefði lagt niður útsöluna á Siglufirði: Það hefði verið símað til Spánar og samt, að nú hefðu Íslendingar brotið samninginn, og nú gætu Spánverjar sagt honum upp. Jeg þekki þá illa Sturlungaaldar-andann, ef þessi hefði ekki orðið gangur málsins.
Í sumar birtist í „Vísi“ grein um landhelgisgæsluna, undir dulnefni, en kunnugt er, að höfundurinn var verslunarmaður einn hjer í bæ. Þar er talað um, að sendiherrar Íslands erlendis standi illa í stöðu sinni. Hvað gerist? Einhver góð sál í Reykjavík klippir greinina út úr blaðinu og sendir hana til sendiherranna í London og Berlín og víðar. Og til hvers? Aðeins til að gera landi sínu bölvun. — Það hryggir mig, að í dag skyldi fást staðfesting á því hjá hv. 3. landsk., að hann vill nota svona mál í stjórnmálastympingunum innanlands.
Ef till. verður samþ., hygg jeg, að rjett væri að fresta kosningu nefndarinnar og sjá, hvort aðrir flokksmenn hv. 3. landsk. hafa ekki vit fyrir honum í þessu máli.