09.02.1928
Efri deild: 18. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í D-deild Alþingistíðinda. (2336)
73. mál, bréfaskifti milli stjórna Spánar og Íslands
Flm. (Ingvar Pálmason):
Jeg fæ alls ekki skilið, að þetta mál geti verið utanríkismál. Hjer er ekki farið fram á annað en að menn fái að athuga þau brjef og önnur gögn, sem til eru hjer í stjórnarráðinu snertandi þetta mál. Það getur því ekki verið utanríkismál, fyr en ef menn þessir fyndu eitthvað, sem átt hefði að dylja. Jeg held því, að spanska keyrið sje notað óhæfilega langt í þessu sambandi. Annars finst mjer framkoma hv. 3. landsk. (JÞ) í þessu máli harla undarleg.