24.02.1928
Neðri deild: 31. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í D-deild Alþingistíðinda. (2386)

80. mál, uppsögn sambandslagasamningsins

Magnús Guðmundsson:

Jeg skal ekki vera margorður út af þessu máli, en af því að mjer skildist af ræðu hv. þm. Dal. (SE), að hann óskaði eftir því, að fram kæmu raddir frá þeim mönnum, sem ekki eru í stjórnarflokknum, um þetta mál, þá skal jeg fyrir hönd Íhaldsflokksins lýsa því í fáum orðum, hvernig hans afstaða er til þessa mála. Get jeg þar alveg tekið undir það, sem hæstv. forsrh. (TrÞ) sagði viðvíkjandi uppsögn samningsins. Jeg held, að yfirleitt hafi engum blandast hugur um það, að við eigum að nota uppsagnarákvæðin. Um utanríkismálin vil jeg benda á það, að á meðan íhaldsflokkurinn var við stjórn, gerði hann sjer far um að hafa menn til taks til að taka við þessum málum, þegar fram í sækti. Jeg skal sem dæmi nefna, að flokkurinn hefir háð talsvert harða baráttu fyrir því að hafa sendiherra í Kaupmannahöfn, en það mál mætti andróðri hæstv. núv. forsrh. (TrÞ) og Framsóknarflokksins yfirleitt. Jeg skal ennfremur benda á, að það var fyrir tilstilli Íhaldsflokksins, að efnilegur, íslenskur lögfræðingur komst að í utanríkisráðuneytinu danska, til þess að kynna sjer þessi mál, svo að hann gæti tekið slík störf að sjer fyrir okkur, ef til þyrfti að taka. Einnig var farið fram á það við fleiri menn að leita inn á þessa braut, og sjerstaklega man jeg eftir einum ungum manni, sem um þetta var beðinn, af því að hann þótti sjerstaklega hæfur til þess, en svör hans voru þau, að hann treysti sjer ekki til þess, eins og sakir stæðu.

En svo vil jeg, út af nokkrum orðum, sem fjellu frá hv. þm. Dal. (SE), segja, að hið allra hættulegasta við þetta samband milli landanna er það, ef við verðum þess varir, að danskur stjórnmálaflokkur sje að seilast til valda hjer, með því vopni, sem bitrast er, en það eru peningarnir. Jeg vil taka þetta fram, til þess að undirstrika það, að jeg er alveg samþykkur hv. þm. Dal. (SE) um, að slíkt sje með öllu óhæfilegt.