24.02.1928
Neðri deild: 31. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í D-deild Alþingistíðinda. (2388)
80. mál, uppsögn sambandslagasamningsins
Fyrirspyrjandi (Sigurður Eggerz):
Jeg leyfi mjer að þakka hæstv. forsrh. (TrÞ) fyrir hin skýru og ótvíræðu svör, sem hæstv. stjórn hefir gefið í þessu máli, og er jeg viss um, að þau munu bergmála í hjörtum allrar þjóðarinnar. Og jeg finn, að hæstv. forsrh. hefir vaxið af svarinu. Jeg vil þá einnig leyfa mjer að þakka hv. frsm. Íhaldsflokksins (MG) fyrir hina skýru afstöðu, sem hann tók til málsins. Jeg þakka sömuleiðis hv. frsm. Alþýðu flokksins (HjV) fyrir skýr svör, og þar sem sá flokkur, eins og hinir flokkarnir, hafa tekið ótvírætt í málið, þá er auðvitað allur vafi tekinn af um afstöðu hans til 6. gr.
Hitt atriðið, um stjórnarfyrirkomulagið eftir uppsögnina, lít jeg svo á, að ekki sje hjer til umræðu, og þó sambandslagasamningnum sje sagt upp, þá hefir það ekki áhrif á konungssambandið.
Jeg endurtek þakkir mínar og vona, að þessi samhljóða yfirlýsing allra flokka verði til þess, að þetta þing verði talið merkt þing í sögu þjóðarinnar.