24.01.1928
Efri deild: 5. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2504 í B-deild Alþingistíðinda. (2397)
17. mál, gin- og klaufaveiki
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg get ekki fallist á, að gengið sje lengra en hægt sje að færa ástæður fyrir út frá þeim grundvelli, sem frv. hvílir á. Jeg vil minna á, að samkvæmt því, sem hjer var samþykt í fyrra, hafði fyrverandi stjórn gert ráðstafanir til þess að draga að sjer ýms gögn í þessu máli. Þau gögn komu fram um það leyti, er hin nýja stjórn tók við völdum, og er frv. þetta borið fram í samráði við þá menn, er best vit hafa á þessum málum.
Hv. þm. benti á, að í þessu frv. væri bannað ýmislegt það, er ekki væri bannað annarsstaðar. En það er ekkert undarlegt, því að aðstaða okkar er önnur en allra annara þjóða í Norðurálfunni um þetta mál: annarsvegar að því leyti, að við erum eina ríkið í álfunni, sem aldrei hefir fengið þessa veiki til sín, og hinsvegar er aðstaða okkar til varnar innanlands, ef svo illa færi, að veikin bærist hingað, verri en flestra annara ríkja, því að við erum svo skamt á veg komnir í löggjöf og framkvæmd heilbrigðismála á þessu sviði.
Jeg er algerlega ósammála hv. 3. landsk. um það, að hjer sje verið að setja óeðlilegar hömlur á verslunina landa á milli. En um hitt er jeg honum fyllilega sammála, að í þessu máli verður að gæta mikillar varúðar, og þeirrar varúðar álít jeg, að sje gætt í frv., en jeg vil mælast til, að háttv. nefnd taki málið til grandgæfilegrar rannsóknar.