03.03.1928
Efri deild: 38. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2510 í B-deild Alþingistíðinda. (2401)
17. mál, gin- og klaufaveiki
Jón Baldvinsson:
Það er rjett hjá hv. frsm. meiri hl., að við vorum sammála um stefnuna í brtt. hans, þó að ekki yrðum við alveg ásáttir um upptalninguna. Jeg álít rjett, að lögin telji upp þær vörur, sem á að banna, og geri sem flestar ráðstafanir til varna. Hitt er annað mál, að ef við ættum að vera alveg öruggir, yrði að banna allar samgöngur milli Íslands og annara landa. Þetta er eina örugga ráðið, og vænti jeg, að það mundi reynast óbrigðult. Raunar er af sumum talið, að veikin berist með fuglum loftsins, en jeg held, að hún kæmist varla á þann hátt yfir hina djúpu Íslands ála. En þetta er nú ekki hægt, og því finst mjer ekki ástæða til að ganga eins langt í upptalningu bannvara og hv. frsm. gerir. Það er varla hugsanlegt að banna innflutning á kartöflum. Sama er að segja um smjör, egg og osta. Slíkt kæmi ákaflega þungt niður á fólki í kaupstöðum. Án eggja er ekki hægt að vera vegna sjúklinga; framleiðsla á þeim er ekki svo mikil hjá okkur. Upptalningin er heldur ekki tæmandi. Ætti hún að vera það, yrði sá listi óendanlegur. En komi upp skaðræðispest í einhverju landi, hefir stjórnin heimild til að banna allar vörur þaðan, þó að ekki sjeu upp taldar í lögum. Annars vænti jeg, að því megi treysta, að veikin muni ekki berast hingað frá löndum, þar sem haft er sæmilegt eftirlit með framleiðslu þeirra vara, sem um ræðir í brtt. minni. En þessar vörur fáum við mest frá Norðurlandaþjóðunum, og hvergi er eftirlitið eða hreinlæti betra. Í þessu sambandi má geta þess, að ef til vill væri rjett að taka upp mat á kartöflum, svo að við þyrftum ekki að taka við hverju því, sem hingað er sent. Hefir þessu áður verið hreyft í þinginu. Líka er sjálfsagt að krefjast þess, að þær sjeu fluttar í nýjum umbúðum.
Fleira hefi jeg ekki að taka fram. En jeg tel freklega nærri mönnum gengið, ef d-liður brtt. á þskj. 314 yrði samþ. Jeg skal geta þess, að jeg hafði tilhneigingu til að nema burt fleiri vörur en jeg gerði í brtt. minni, en jeg vildi fara varlega og ljetta banni aðeins af þeim vörum, sem mjer fanst mest nauðsyn á.