03.03.1928
Efri deild: 38. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2518 í B-deild Alþingistíðinda. (2405)

17. mál, gin- og klaufaveiki

Jón Baldvinsson:

Um athugasemdir hæstv. forsrh. viðvíkjandi brtt. minni vil jeg segja honum það, að þótt hann þykist standa á vísindanna grundvelli, vitum við allir, að hættan getur verið samt, og veikin getur borist, af því að við höfum ekki vald til að banna það, sem er allra skaðvænlegast í ressu máli — rotturnar, sem alstaðar leika lausum hala. Vísindin segja, að þær sjeu allra hættulegastar. En við ráðum ekki við þær, svo að við verðum að skáka svolítið út af grundvelli vísindanna og fara eftir því, sem heilbrigð skynsemi segir okkur. Við megum ekki banna innflutning á þeim vörutegundunum, sem eru bráðnauðsynlegar fyrir okkur, eins og til dæmis kartöflur. Þá mundi brátt koma upp munn- og klaufaveiki í mannfólkinu; og það væri að fara úr öskunni í eldinn.

Þeir hv. þm., sem talað hafa í þessu máli, hafa flestir gert mikið úr þeirri hættu, sem okkur stafi frá fjarlægari löndum. Það kann að vera rjettmætt. En við verslum nær eingöngu við nágrannalöndin, eins og við höfum altaf gert. Hættan er því ekki meiri nú en verið hefir, en hinsvegar gæti veikin vel borist til landsins, þó að bannaður sje innflutningur á öllu því, sem hjer hefir verið talið upp. Við erum aldrei öruggir, þó að við viljum gera það, sem í okkar valdi stendur, til þess að varna smitun. En jeg held, að við gerum okkur sjálfum mest óþægindi með því að banna innflutning á kartöflum og mjólkurafurðum. Jeg er alveg sammála hv. þm. Snæf. í því efni, og hann er víst ekki í vafa um mína skoðun, því að jeg er búinn að segja hana áður hjer í hv. deild, þó að jeg hafi ekki komið fram með tillögu þar að lútandi.

Það er víst alveg rjett hjá hv. frsm. meiri hl., að aths. á eftir d-lið á aðeins við þann lið einan. En vera má, að það sje ekki nógu skýrt fram tekið.