03.03.1928
Efri deild: 38. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2520 í B-deild Alþingistíðinda. (2406)
17. mál, gin- og klaufaveiki
Jón Þorláksson:
Út af ummælum hv. 1. þm. Eyf. um síðustu málsgreinina í brtt. við 2. gr. og þá skýringu, sem hann gaf, vil jeg taka það fram, að jeg held ekki, að brtt. hans megi verða að lögum með þeirri skýringu. Eftir henni yrði engin heimild fyrir stj. til að veita undanþágu um þær vörur, sem nefndar eru í a-lið, þó að sannanlegt sje, að engin; gin- og klaufaveiki gangi í þeim löndum, sem þær koma frá. Þetta hygg jeg, að geti ekki staðið í lögum vegna verslunarsamninga og alþjóðlegrar venju. Jeg get tekið sem dæmi, að naumast myndi þykja hæfa að banna að flytja inn hey frá þeim löndum, þar sem sannanlega væri ekki um gin- og klaufaveiki að ræða og ef ábyggilegt upprunavottorð fylgdi. Þetta mætti nú laga til 3. umr., og jeg hefði jafnvel getað fallist á, að þessi heimild lægi fyrir í frv., ef háttv. frsm. meiri hl. hefði ekki gefið gagnstæða skýringu.