17.03.1928
Efri deild: 50. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1063 í B-deild Alþingistíðinda. (241)
1. mál, fjárlög 1929
Fjmrh. (Magnús Kristjánsson):
Jeg vonaði, að sá hv. þm., er síðast talaði, mundi álíta, að hjer væri vel að verið með framkvæmd þessa máls, þegar jeg reyndi að auka þetta fjárframlag þannig, að það yrði 150 þús. kr.
En jeg sje nú, að svo muni ekki vera. Jeg sje, að það muni eiga að leggja áherslu á það að ganga ríkt eftir því, að þessi samningsatriði, sem hjer hefir verið minst á, verði haldin. En jeg er ekki hræddur við það, og jeg vona, að þessi háttv. þm. (IHB) muni eftir nánari athugun komast að raun um það, að ef stj. þætti hentugra að fara varlega í þessar fjárveitingar fjárhagsins vegna, þá sje ekki hægt að halda því fram, að með því geti stj. bakað sjer sjerstaka ábyrgð. (IHB: Ekki nema þá ábyrgð, sem loforð hafa skapað). Hinsvegar er jeg sammála hv. 2. landsk. um það, að það beri að halda þessu verki áfram, en auðvitað skynsamlega og rólega, svo að steinsteypuefnið fái að minsta kosti að harðna, svo sem það þarf, áður en byggingin verður tekin til afnota, en það mun hafa bólað á einhverjum erfiðleikum í þá átt.
Jeg get ekki skilið, að það sje útilokað, að sjúkrahúsið megi taka til afnota að einhverju leyti, áður en allar útbyggingar eru fullgerðar, ef aðalbyggingunni sjálfri er fulllokið. Finst mjer mjög undarlegt, ef ekki mætti hafa þar nokkra sjúklinga, heldur en t. d. í Hafnarfirði, þótt eitthvað væri enn ekki fullgert.
Annars hefir það verið tekið fram hjer, og vil jeg taka undir það, að best sje að geyma sjer framhaldsumræður um þetta mál þangað til síðar.
Jeg vil aðeins geta þess út af fyrirspurn hv. 5. landsk., að jeg álít það heppilegt, að þeir, sem miklar kröfur ætla að gera. fái tækifæri til þess að undirbúa atlöguna.