06.03.1928
Efri deild: 40. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2524 í B-deild Alþingistíðinda. (2413)

17. mál, gin- og klaufaveiki

Halldór Steinsson:

Jeg þarf ekki að tala langt mál um brtt. mína á þskj. 379. Jeg tók það fram við 2. umr., að kál væri svo nauðsynleg og holl fæðutegund, að ekki gæti komið til mála að setja innflutningshöft á hana, og það þeim mun síður, sem ræktun káls er hjer mjög takmörkuð. Jeg tel fulla ástæðu til að sleppa einnig öðrum tegundum, sem taldar eru undir d-lið, þó jeg fari ekki fram á það nú. En hitt finst mjer sjálfsagt, að undanþiggja kálið, og vona jeg, að hv. deild geti orðið mjer sammála.