09.03.1928
Neðri deild: 43. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2532 í B-deild Alþingistíðinda. (2424)
17. mál, gin- og klaufaveiki
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg þarf ekki að taka það fram, að jeg er algerlega sammála hv. þm. Borgf. viðvíkjandi þeim atriðum, sem feld voru úr frv. í Ed. Hinsvegar er það, að þegar komið er fram á nótt, taldi jeg ekki sjerstaka ástæðu til þess að ræða þetta nú, enda höfum við margrætt þetta mál hjer í hv. deild, svo að mjer þótti óþarfi nú að tefja fyrir að vísa því til nefndar. Jeg býst líka við, að hv. þm. Borgf. viti um atkvgr. í Ed., að allir flokksmenn hans greiddu atkv. með því fyrst að vísa frv. frá og því næst að taka þessi atriði úr frv., og því miður voru ekki nema fáir úr mínum flokki, sem stóðu fyllilega með frv. Og það er sá sorglegi sannleikur í þessu máli, að þó að jeg telji víst, að Nd. sje líks sinnis og í fyrra, þá er Ed. þannig skipuð, að jeg tel vonlítið, að við getum komið þeim atriðum í gegn, sem við bárum fram í fyrra og borin voru fram nú. En sjálfsagt er að taka það til nánari athugunar í nefnd.
En jeg geri ráð fyrir, að háttv. þm. Borgf. hafi athugað þetta frv. eins og það er nú; í því eru enn atriði, sem löggjöfinni er undir öllum kringumstæðum mikill ávinningur.
Það gefst vitanlega tækifæri að ræða þetta mál, þegar það kemur frá nefnd, og þar sem áliðið er kvöldsins, tel jeg ekki ástæðu að fjölyrða meira að sinni.