09.03.1928
Neðri deild: 43. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2539 í B-deild Alþingistíðinda. (2429)
17. mál, gin- og klaufaveiki
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg verð að mótmæla því mjög eindregið, sem kom fram í ræðu háttv. 1. þm. Reykv., að frv. þetta sje bygt á litlum rannsóknum og að kastað hafi verið til þess höndunum. Það er þvert á móti bygt á eins miklum vísindalegum grundvelli eins og hægt er að byggja á í þessu efni hjer. Og hafi nokkurt frv., sem fyrir þinginu liggur, verið bygt á vísindalegum grundvelli, þá er það þetta. Að því hafa þeir menn unnið, sem best skyn bera á þessi mál hjer, sem sje dýralæknirinn og sá starfsmaður í Búnaðarfjelagi Íslands, sem þessi mál heyra undir þar. Og þeir höfðu sjer til hliðsjónar bestu erlendar fræðibækur um þetta efni. Það fer því fjarri, að frv. þetta hafi ekki verið bygt á vísindalegum grundvelli, eftir því, sem annars er hægt með lagafrumvörp. Þá vildi þessi háttv. þm. halda því fram, að sýklarnir gætu ekki borist með smjöri, en rannsóknir hafa þvert á móti virst leiða það í ljós, að sýklarnir gætu bæði borist með smjöri og osti.