09.03.1928
Neðri deild: 43. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2545 í B-deild Alþingistíðinda. (2435)
17. mál, gin- og klaufaveiki
Magnús Jónsson:
Hv. þm. V.-Sk. vil jeg aðeins svara því, að .þó að jeg orðaði þetta þannig, að það þyrfti að tala kjark í landbn., þá var það ekki af því, að jeg teldi, að nefndin þyrði ekki að láta í ljós skoðanir sínar. Jeg sagði þetta til þess að nefndin vissi, að hún ætti von nokkurs styrks í deildinni, þótt hún gerði svo gott verk að leggja á móti þessu máli. Það var því ekkert ósæmilegt, þó að jeg orðaði þetta þannig. Hitt er aftur ósæmilegt, að brigsla mönnum, sem eru á annari skoðun en maður sjálfur, um ljettúð og ábyrgðarleysi, eins og hv. 1. þm. Árn. gerði. Annars fanst mjer, að rökin hjá honum og hæstv. atvmrh. vera harla ljettvæg. Hæstv. atvmrh. þóttist nú heldur en ekki hafa náð tangarhaldi á mjer út af því, að jeg sagði, að sýklar veiki þessarar gætu lifað dálítið í smjöri, því að sannleikurinn væri sá, að sýkillinn væri alls ekki fundinn. En hjer skautst, þótt skýr væri. Einmitt vegna þess, að sýkillinn er ekki fundinn, er tilraunum hagað eins og jeg gat um. Og þá sýnir reynslan, að kálfarnir sýkjast af smjörinu alveg nýju, en síðan ekki. Ef sýkillinn væri fundinn, þyrfti ekki að fara þessa krókaleið í rannsóknunum. Hjer er alveg því sama til að dreifa eins og í vítamín-rannsóknunum. Enginn hefir enn fundið þessi bætiefni, en verkanir þeirra sjást.
Hv. 1. þm. Árn. þóttist hafa fundið fjarskalegt ósamræmi í ræðu minni.
Jeg segði í öðru orðinu, að smjör gæti ekki sýkt, en í hinu orðinu segði jeg, að farþegar gætu verið sýktir af smjöráti í útlöndum.
Jeg vona, að hv. þm. hafi heyrt, að jeg sagði, að smjör sýkti meðan það væri nýtt, en ekki þegar það væri orðið jafngamalt og það hlýtur að vera orðið, þegar það er komið hingað til lands. En galdurinn leysist alveg, þegar þess er gætt, að menn eta stundum nýtt smjör í útlöndum. Þar geta menn fengið sýkilinn í sig, og hann svo lifað í þeim áfram, þó að hann drepist í smjörinu.
Hv. 1. þm. Árn. sagði, að þeir mundu hafa önnur ráð til þess að bera fram frv. um verndartolla; það má vel vera, en það er ekki altaf jafnauðvelt. Að minsta kosti var reynt að fara þá leið um sumt af þessum vörum, en það tókst ekki. Menn vildu ekki verndartollana, og þá var komið með þetta. (LH: Hjer er ekki verið að tala um verndartolla). Nei, en það er verið að tala um það, sem verra er, nefnilega að útiloka vöruna alveg. En jeg vil, að þetta komi hreint fram, en ekki grímuklætt.