22.03.1928
Neðri deild: 54. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2553 í B-deild Alþingistíðinda. (2440)

17. mál, gin- og klaufaveiki

Hjeðinn Valdimarsson:

Það eru víst allir Íslendingar sammála um það, að mikið beri að gera til þess að verjast því, að gin- og klaufaveiki berist ti: landsins, og sýnir það sig best af afgreiðslu þessa máls frá Ed. En þegar svo málið kemur hingað, fær það þær viðtökur, sem maður skyldi síst ætla. Tveir hv. þm. fyltust tryllingi út af afgreiðslu Ed. á því, þeim tryllingi, að maður skyldi síst ætla, að málið væri þeim það alvörumál, sem búast hefði mátt við. Þessi framkoma þessara hv. þm. er þeim mun undarlegri, þegar þess er gætt, að einmitt nú er gin- og klaufaveikin alstaðar í rjenun. Það var því síst ástæða til þess að láta málið fara að valda tryllingi í þinginu nú.

Jeg skal þá fyrst taka til athugunar till. á þskj. 528, frá fimm háttv. þm. Flm. þessara brtt. vilja banna með öllu innflutning á mjólkurafurðum, eggjum, káli og öðru hraðvöxnu grænmeti, en setja kartöflur, rófur og fóðurkökur undir þann lið, sem veita má undanþágu frá á banninu.

Þær upplýsingar, sem jeg veit bestar um sóttnæmi gin- og klaufaveikinnar, eru frá yfirdýralækni Dana og gefnar árið 1925. Eftir þeim lítur út fyrir, að þær vörutegundir, sem hjer á að banna innflutning á, sjeu alveg hættulausar. Maður þessi, sem kunnastur er á Norðurlöndum sem sjerfræðingur á þessum sviðum, heldur því fram; að niðursoðin mjólk geti ekki borið gin- og klaufaveikibakteríuna, því að þegar búið sje að hita hana og pasteurisera, þá sjeu allir þessir sýklar dauðir, og sje hún því með öllu hættulaus sem sýklaberi í þessu efni. Um eggin segir hann, að bakteríurnar geti aðeins lifað á skurninu stuttan tíma, og sjeu því dauðar eftir fáa daga. Getur því engin smitunarhætta stafað af þeim, þegar þau eru komin hingað. Sama er að segja um ostana; þeir eru líka hættulausir, þegar þeir eru komnir hingað, því að hann telur bakteríuna ekki geta lifað í þeim eftir að gerð er komin í þá. Einmitt þessar vörur, niðursoðin mjólk, egg og ostar, eru þær vörur, sem flm. brtt. á þskj. 528 vilja banna með öllu innflutning á. (PO: Er það Jensen dýralæknir, sem hv. þm. á við?). Já, kennari Hannesar Jónssonar, sem er ráðunautur stj. í þessum málum hjer.

Þá er að minnast á kartöflurnar. Með þeim telur Jensen, að bakterían geti varla flutst. Allar þessar vörur nota bæjarmenn hjer, og kaupstaðabúar yfirleitt, í stórum stíl, og eigi að fara að takmarka eða banna innflutning á þeim, fer verðið upp úr öllu valdi.

Það er kunnugt, að verndartollastefnan hefir lengi átt erfitt uppdráttar hjer á landi. Íslendingar hafa skilið, að verndartollar hefðu orðið til þess að gera vörurnar dýrari og að það, sem einn hefði grætt á þeim, hefði annar tapað. En nú á síðari árum, þegar þeir eru orðnir óvinsælir erlendis, hefir verið tekin upp önnur leið að sama marki t. d. í Bretlandi. Hún er sú, að nota heilbrigðisráðstafanir að yfirskyni til þess að banna aðflutning á samkepnisvörum til verndunar innlendri framleiðslu, sem annars gæti ekki staðist þessa samkepni. — Þetta virðist nú sumum mönnum hjer á landi vera mjög slungið ráð og halda, að Íslendingar muni ekki vara sig á því eins og á hreinum verndartollum. Mjer er kunnugt um, að ýmsir nánustu stuðningsmenn núverandi stj. hafa haldið því fram, að rjettast væri að takmarka mjög innflutning á erlendum landbúnaðarafurðum, til þess að útiloka samkepni hjer. Það segir sig sjálft, að slíkt fyrirkomulag væri til mikilla hagsbóta fyrir þá, sem framleiða vörurnar og selja þær öðrum landsmönnum, en jafnframt til jafnmikils óhags fyrir hina, sem þurfa að kaupa þær sjer og sínum til lífsframfæris.

Af því, sem hjer hefir verið sagt um smitunarhættuna, liggur nærri að halda, að brtt. þær, sem hjer liggja fyrir, sjeu annað tveggja bornar fram af fáfræði, eða sem vernd fyrir hina innlendu framleiðslu á þessum vörutegundum. Í nágrannalöndunum, t. d. Noregi, hefir aldrei verið bannaður innflutningur á þessum vörum. (PO: Enda hefir gin- og klaufaveiki komið þangað). Já, en horfið jafnskjótt aftur. Jeg held því, að enda þótt þessi viðbótartill. hinna 5 hv. þm. verði samþykt, þá sjeum við engu vissari um það, að gin- og klaufaveiki geti ekki borist til landsins.

Árið 1917 reyndust í Bandaríkjunum af hverjum 100 sjúkdómstilfellum af sýki þessari 25 tilfelli af óþektum ástæðum. Í 16 tilfellum hafði hún flutst með mönnum, en í öllum öðrum tilfellum með dýrum, eða flutst með járnbrautarvögnum. Að sýkin geti borist hingað með dýrum, er með öllu útilokað eftir frv. eins og það kemur frá Ed. Ætti því smitunarhætta hingað annaðhvort að vera af óþektum ástæðum eða með mönnum. Það hefði því frekar verið ástæða til að banna innflutning á mönnum heldur en þessum vörutegundum, sem ástæðulaust er að búast við, að smiti.

Jeg vil svo að endingu skora á hv. deildarmenn að hugsa sig tvisvar um, áður en þeir greiða atkv. með því, ekki einungis að sprengja verðið á nauðsynjavörum við sjávarsíðuna upp úr öllu valdi, heldur einnig að svifta bæjarbúa nauðsynlegum fæðutegundum, því að það er víst, að ekki verður t. d. hægt að útvega nægilega mikið af kartöflum og eggjum innanlands, ef innflutningur á þeim vörutegundum verður bannaður. Og Mjallarmjólkin, sem hjer mun nú mest vera hugsað um, getur jafnvel ekki bætt upp mjólkurskortinn, ef bannaður verður innflutningur á niðursoðinni mjólk. Annars hefi jeg líka heyrt sagt, að skamtur þeirra sjúklinga, sem aðeins mega lifa á eggjum, hafi þegar verið settur niður um helming, sökum skorts á eggjum. Þeir, sem greiða brtt. atkvæði, taka því á sig mikla ábyrgð, sem getur orðið þeim þungbær áður en lýkur.