22.03.1928
Neðri deild: 54. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2576 í B-deild Alþingistíðinda. (2449)

17. mál, gin- og klaufaveiki

Magnús Jónsson:

Því miður heyrði jeg ekki byrjun þessarar umræðu, en jeg geri ráð fyrir, að meginatriði þess, sem sagt hefir verið um málið af hálfu stuðningsmanna frv., hafi verið dregið saman í ræðu hins mikla áhugamanns, hv. þm. Borgf. Því fer fjarri, að jeg vilji innleiða neinar stórdeilur við vin minn, hv. þm. Borgf., en í þessu efni er mjer ómögulegt, því miður, að vera honum sammála. Hann virðist halda, að þær ráðstafanir, sem talað er um að gera um höft innflutnings, sjeu meinlausar. Og það sama kom fram hjá hv. 1. þm. Rang., þegar hann var að skopast að kartöfluumhyggju hv. þm. Vestm. En jeg verð að segja þessum hv. þm., að ef kartöfluverð eða verð á öðrum vörutegundum, sem á að banna innflutning á, hækkar, þá er það alvarlegt mál. Þeir mega vita, að í þeirri hækkun felst ekki lítill skattur á þá íbúa landsins, sem þurfa að kaupa þessar vörur. Skal jeg játa, að jeg hugsa hjer fyrst og fremst um mitt kjördæmi. (EJ: En þessi skattur er smáræði, samanborið við hættuna). Jeg kem að því síðar. Ekki hefi jeg reiknað, hve miklu þessi skattur muni nema. En svo mikið veit jeg, að fátækar fjölskyldur hjer í Reykjavík, sem naumast geta greitt útsvar, finna minna grand í mat sínum. Er þó mikill munur á að greiða þau gjöld, sem fara til framkvæmda innan bæjarins, eða greiða þessa peninga til sveitanna hjer í kring. Mjer finst varla hægt að lá okkur Reykvíkingum, þó að við viljum heldur njóta eigna okkar sjálfir en láta þær af hendi við utanbæjarmenn að óþörfu.

Nú skal jeg játa, að það væri ekkert áhorfsmál og mundi sjálfsagt enginn telja eftir að samþykkja bann gegn innflutningi allra þessara vara, ef á því ylti, hvort veikin bærist hingað eða ekki. En það er nú síður en svo. Ennþá er eftir að sýna fram á það.

Mjer virðist sjerstaklega tvent koma til athugunar í þessu máli. Hið fyrra er, hvort banna þurfi allar þessar vörur, og hitt, hvort dugir að banna þær. Sje ekki svo, er verið að auka mönnum erfiðleika að óþörfu.

Þegar jeg hugsa um þessar svonefndu varnarráðstafanir, dettur mjer í hug skopmynd, sem jeg sá í blaði vestanhafs. Þar var verið að hæðast að strandvörnunum í Bandaríkjunum. Á myndinni sjest Jónatan — sem altaf táknar Bandaríkjamenn — þar sem hann er að víggirða sig. Hann er búinn að reisa upp 4 hlið, há og mikil fyrirferðar, með rambyggilegum grindum, ramlega læstum með lásum og slagbröndum. Þykist hann nú óhultur, en þegar að er gætt, sjest, að engin girðing er milli hliðanna. Eitthvað svipað hafast flm. frv. að. Þeir keppast við að reisa hliðin og halda, að það dugi, þó að girðinguna vanti. Þeir heimta hinar og aðrar varnarráðstafanir, þó að vitanlegt sje, að þær geti aðeins að mjög litlu leyti stemt stigu fyrir veikinni.

En sannleikurinn er sá, að þeir standa í fölsku ljósi með tillögur sínar. Þeir ógna með gin- og klaufaveikinni og leggja hana á metaskálina móti löngun Reykvíkinga í egg og smjör. En í rauninni er ekki um þetta að ræða. Hjer er ekki verið að heimta varnir gegn munn- og klaufaveiki, heldur varnir gegn innflutningi vara. Frv. er grímuklædd vernd fyrir íslenskar landbúnaðarafurðir.

Jeg hefi hingað til haldið mjer við álit þess sjerfræðings, sem helst hefir verið leitað til í þessu máli. Og jeg fæ ekki annað sjeð en að það, sem hv. þm. Borgf. var að lesa upp áðan, sje í samræmi við það, sem jeg hefi haldið fram. Ætlan manna er yfirleitt sú, að veikin geti borist með afurðum innan hjeraðs, en naumast milli landa. Dönum hefir t. d. ekki þótt ástæða til að banna innflutning til Færeyja. Og það er heldur ekki fyr en nú á síðustu árum, sem farið er að ympra á vörnum gegn veikinni hjer á landi. Og þó hefir hún geisað úti í löndum um langan tíma. Nei, það er einhver önnur forsjálni, sem liggur bak við þessar till., en óttinn við gin- og klaufaveikina.

Mjer dettur ekki í hug að halda því fram, að bakteríurnar muni skríða út úr eggjunum á leiðinni. Jeg held, að þær skríði yfirleitt ákaflega lítið. Auk þess er vegalengdin fyrir bakteríu gegnum eggskurn sjálfsagt eins mikil og fyrir mann að fara fótgangandi frá Reykjavík til Seyðisfjarðar. Jeg held, að bakteríurnar dræpust á leiðinni. Háttv. þm. Borgf. gekk inn á það, að gerðin í ostinum mundi drepa bakteríurnar, en hjelt, að þær mundu koma þangað aftur. Jeg ætla, að sýran muni nú haldast nokkuð lengi. Eggert Ólafsson segir a. m. k., að gerð haldi áfram í smjöri í 20 ár. En ef hv. þm. heldur, að osturinn muni vera svo illa geymdur í Danmörku, að fjenaður, sem sjúkur er af gin- og klaufaveiki, sje látinn nudda sjer upp við hann, þá mun það vera ljótur misskilningur. Og ef menn á annað borð halda, að sóttnæmi muni berast á þennan hátt, þá geta líka allir hlutir verið hættulegir, og þá þyrfti að banna innflutning á öllum vörum, ef vel ætti að vera. Nei, jeg hygg, að alment sje litið svo á, að sýkingarhættan stafi eingöngu frá mjólkinni, sem ostarnir eru búnir til úr, en ekki gert ráð fyrir, að sóttkveikjurnar berist í þá eftir á.

Þá eru farfuglarnir. Um þá er ekkert fullsannað, en grunur leikur á, að þeir geti borið veikina. Nú hafa menn mikinn ótta af hinum tíðu hraðferðum skipanna milli Íslands og útlanda. En hvað eru þær þó á við þær hraðferðir, sem farfuglarnir hafa haldið uppi frá ómuna tíð? Menn halda, að veikin berist með kartöflum. En gæti hún þá ekki eins flutst með kornvörum? Ekki er loku fyrir það skotið, að húsdýraáburður kunni að vera borinn á akra. Og nú vil jeg benda á það, að próf. Jensen segir í skýrslu sinni, að mest hætta stafi einmitt af farþegum — næst sjálfum húsdýrunum. Eigum við að fara að banna mannflutninga milli Íslands og annara landa?

Hv. þm. Borgf. greip á kýlinu, þegar hann fór að tala um spönsku veikina. Hvað rjeðum við við spönsku veikina 1918? (PO: Það var ekkert gert til þess að hindra hana). Jeg get fullvissað hv. þm. um, að það er enginn læknir til í veröldinni, sem heldur, að hægt sje að hindra kvefpestir. En gin- og klaufaveikinni er að áliti sjerfræðinga svipað farið. Allar okkar varnarráðstafanir verða árangurslausar, ef hún á annað borð getur borist hingað. Við stöndum uppi eins og Jónatan á myndinni, sem jeg gat um, með rammlæst hlið, en enga girðingu. Hv. þm. Borgf. gaf í skyn, að það væri eitthvað, sem ýtti fast á eftir mjer og öðrum, sem erum á móti brtt. Það er ekki nema eðlilegt, að hann reyni að borga fyrir sig, því að svipuðu höfum við beint að honum og fylgismönnum hans í þessu máli. Jeg geri ráð fyrir, að hann vilji segja, að við sjeum á móti þessu af umhyggjusemi fyrir sambandsþjóðinni, Dönum. Jeg sje nú enga ástæðu til að bera skjöld fyrir Dani í þessu máli. En hitt vil jeg segja, að ekki sje rjett að gera að óþörfu ráðstafanir, sem eru friðsamri og vinveittri frænd- og nágrannaþjóð til tjóns. Tel jeg þetta að vísu ekki þungvægar ástæður í málinu, en ekki er vert að ganga framhjá því.

Að lokum vil jeg mæla eitt varnaðarorð til hv. deildar. Þessi hv. deild hefir viljað bæta ákvæði inn í frv. eins og það kom frá hv. Ed. Er ekki annað sýnt en þetta muni verða ágreiningsefni milli deildanna. Vera má, að Ed. verði að láta í minni pokann, ef til fundar kæmi í sameinuðu þingi. En hún hefir rjett til að fella frv. Og flm. brtt. ættu að sjá, að betri er hálfur skaði en allur, og heppilegra er fyrir þá að samþykkja frv. eins og það er heldur en að eiga á hættu, að það verði drepið.

Þá vil jeg minnast á 3. gr. frv. Jeg get sagt það, að í raun og veru eru allar brtt. smámunir í mínum augum, ef 3. gr. á að standa, því að samkv. henni má stj. banna innflutning hvaða vöru, sem henni þóknast. Og þar sem hæstv. stj. er altekin af þeirri voðalegu veiki, sem komið hefir þessu frv. af stað, nefnilega hinni svo kölluðu hræðslu við gin- og klaufaveikina, verð jeg að segja það, að svo framarlega sem 3. gr. verður látin standa, get jeg ekki fylgt frv.

Hv. 2. þm. Rang. var hreinskilinn áðan. Hann sagði, að það væri ósiður að flytja hey inn í landið. Þarna gægist fram hin sanna ástæða fyrir framkomu frv. Það á að hindra innflutning einstakra vörutegunda. Hv. þm. hefir sína skoðun um það, að þessi innflutningur sje óheppilegur. Jeg er fús til að ræða um það við hann, er tækifæri gefst, og þá er ekki að ræða um neina grímumenn eins og í þessu frv.*( *Vantar eitthvað aftan af ræðunni í handriti skrifarans. M. J.)